Valsblaðið - 01.05.1989, Page 65
„OKKUR FINNST VIÐ
MJÖG SKEMMTILEGAR“
Ragnheiður Vík-
ingsdóttir, fyrirliði
meistaraflokks
kvenna í knatt-
spymu, Valsmaður
ársins 1989 og ís-
landsmeistari i
„squash”
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Ragnheiöur hampar sigurlaununum eftir sigur
Vals á ÍA í úrslitaleik bikarkeppninnar áriö
1988.
íslandsmeistaratigninni 1989 fagnað með stíl!
„Það má segja að ég hafi verið í mömmu-
leik og dúkkulísuleik alveg til 12 ára aldurs.
Ég hafði ekki nokkurn áhuga á íþróttum fyrr
en Magnús Jónatansson, best þekktur sem
knattspyrnuþjálfari, dreif okkur út í fótbolta
þegar hann nenndi ekki að kenna. Ég var þá
í 12 ára bekk í Hvassaleitisskóla. Hann lét
stráka spila á móti stelpum og var svo alltaf
með okkur í liði. Það er því Magnúsi að
þakka að ég fékk áhuga á fótbolta. Ég hafði
ekki einu sinni áhuga á að fara út í viðstöðu-
lausan áður. Maggi sagði okkur líka nokkrar
grobbsögur af sjálfum sér, hvernig hann sól-
aði andstaeðinga sína þegar hann lék með
landsliðinu. Seinna komst ég auðvitað að því
að hann lék aldrei með landsliðinu. En það
skipti ekki öllu máli.”
Ragnheiður Víkingsdóttir, heitir valkyrjan
sem segir svo frá en hún hefur leikið knatt-
spyrnu með meistaraflokki Vals frá því 1977.
Hún á 13 ár með meistaraflokki að baki en er
samt ekki nema 27 ára gömul. Hún átti af-
mæli 10. desember síðastliðinn. Ragga, eins
oghún er jafnan kölluð, hefur lengstum verið
fyrirliði meistaraflokks og verið ein aðaldrif-
fjöðurinn í hinum eldfjöruga og einstaklega
hressa kvennaflokki sem hefur verið svo sig-
ursæll í gegnum tíðina. Hún hefur fjórum
sinnum orðið íslandsmeistari með Val —
1978, ’86, ’88 og ’89 og bikarmeistari fimm ár
í röð, frá 1984-88. Ragnheiður á um 240 leiki
að baki með Val, hefur nokkrum sinnum ver-
ið valinn leikmaður ársins í meistaraflokki og
í ár var hún valin „Valsmaður ársins”, sem er
mikil viðurkenning.
Ragnheiður lék fyrsta kvennalandsleik ís-
lands í knattspyrnu árið 1981 í Skotlandi og
var fastamaður í liðinu þegar það var og hét.
Að endingu má geta þess að hún er íslands-
meistari í „squash” og er nýkomin heim úr
keppnisferð frá Kýpur en þar tók landsliðið í
squash þátt í smáþjóðaleikum.
Ragnheiður er sjúkraþjálfari að mennt og
vinnur í endurhæfingarstöð Kolbrúnar við
Engjateig. Foreldrar hennar heita Víkingur
H. Arnórsson og Stefanía Gísladóttir. Sam-
býlismaður hennar er knattspyrnumaðurinn
góðkunni úr Fylki, Anton Jakobsson — þess
má geta að þau búa í KR-hverfinu.
„Það má eiginlega segja að það hafi verið
tilviljun að ég fór í Val,” segir Ragnheiður.
„Ég hef alltaf búið í Fram-hverfinu en þar
sem engar upplýsingar var að fá um kvenna-
knattspyrnu í félaginu, þegar mig langaði til
að byrja að æfa, fletti ég bara upp í síma-
skránni til þess að leita að einhverju knatt-
spyrnufélagi. Um það leyti frétti ég að nýbúið
væri að stofna kvennadeild í Val og þegar ég
mætti á mína fyrstu æfingu þar haustið 1976
voru stelpurnar aðeins búnar að æfa í 2 mán-
uði. Nokkrar handboltastelpur í Val byrjuðu
að æfa undir stjórn Hermanns Gunnarsson
en eftir áramót tóku Albert Guðmundsson og
Youri llitchev, þjálfari meistaraflokks karla,
65