Valsblaðið - 01.05.1989, Page 66
1. íslandsmeistaratitill Vals í meistaraflokki kvenna — 1978. Aftari röð frá vinstrí: Auöur Ólafsdóttir, Kaja, Sigrún Þórarinsdóttir, Erna Lúðvíksdóttir,
Jóhanna Pálsdóttir, Þóra Guðjónsdóttir, Sigrún Cora Barker, Helcna Önnudóttir, Anna Vignir, Albert Guðmundsson þjálfarí. Fremri röð frá vinstri: Sól-
veig Sigurðardóttir, Bryndís Valsdóttir, Sigrún Bergmundsdóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir, Rósa, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Karen Guðnadóttir.
*
Gífurlegur fögnuður í sturtu eftir sigur í 1. deild 1989.
við liðinu. Við tókum í fyrsta skipti þátt í ís-
landsmóti árið 1977 og stóðum okkur vel
miðað við það að vera algjörir byrjendur.
Þau félög, sem sendu lið til keppni þetta ár,
voru Víðir Garði, Fram, Breiðablik, FH og
Valur. Við lentum í 2. sæti á íslandsmótinu
okkar fyrsta sumar og töpuðum reyndar titl-
inum á sorglegan hátt. Okkur nægði jafntefli
í síðasta leiknum til þess að tryggja okkur ís-
landsmeistaratitilinn en markvörður okkar
sparkaði boltanum í rassinn á mótherja og
frá afturendanum skoppaði boltinn inn í
markið. Þetta var voðalega sorglegt. En okk-
ur tókst betur upp næsta sumar og urðum ís-
landsmeistarar 1978.”
— Af hverju hefur Valsliðið verið svona
sterkt undanfarin ár?
„Við höfum allar verið mjög áhugasamar
og kjarninn í liðinu hefur haldist mjög lengi.
Við höfum verið heppnar með þjálfara og er-
um ávallt hungraðar í titla.”
Þess má til gamans geta að á sínum 13 ára
ferli í meistaraflokki Vals hefur Ragnheiður
aðeins misst 4 leiki úr, þar af 2 vegna ferða-
laga erlendis.”
— Ertu ekkert orðin þreytt á þessu eftir 13
ára strit og erfiðið?
„Ég fann í fyrsta skipti fyrir þreytu vorið
1988. Þá ætlaði ég varla að nenna að fara af
stað. En þetta er svo skemmtilegt og félags-
skapurinn svo góður. Mér fyndist ég vera að
missa af einhverju ef ég myndi hætta. Auðvit-
að tekur þetta mikinn tíma en ánægjan vegur
upp á móti.”
— Með hvaða þjálfara hefur þú verið
ánægðust?
66
„Youri og Albert kenndu okkur mest
tæknilega séð. Það er engin spurning. Þeir
kenndu okkur þríhyrningsspil og létu okkur
spila mikinn reitarbolta. Logi Ólafsson hefur
líka verið mjög góður og kennt okkur mikið
í taktík. Hann hefur gert okkur grein fyrir því
að fótbolti er einfaldur leikur og náð því út úr
okkur sem hann hefur viljað. Hjá honum
lærðum við að opna svæði, skipta um stöður,
hlaupa í hornin og sitthvað annað. Áður
hugsuðum við allar bara um boltann og það
sem næst honum var. Logi veit alveg hvað
hann er að gera og byggir æfingarnar mjög
vel upp. Hann er líka alltaf mjög vel undirbú-
inn fyrir æfingarnar.”
— Af ykkur hefur geislað mikil samkennd
og skemmtilegheit í gegnum tíðina. Eruð þið
svona ofsalega skemmtilegar?
„Okkur finnst við vera mjög skemmtilegar
en öðrum liðum fínnst það ekki” segir Ragn-
heiður og hlær en meinar það greinilega sem
hún segir. „Annars er það áberandi hvað
stelpur úr öðrum liðum eru tregar við það að
skipta yfir í Val. Þær halda að þær komist
ekki í liðið. Staðreyndin er sú að leikmanna-
hópur okkar er ekki svo stór.”