Afturelding - 01.10.1985, Page 19
þessa sömu uppsprettulind. Á
hverju kvöldi sest ég á rúmstokk-
inn hjá þeim og við biðjum sam-
an. Það er fyrst þá sem ró færist
yfir þau og þau sofna djúpum og
værum svefni.
15. desember 1982
Jólaundirbúningur. Jólastress.
Ég ákveð að víst skulum við
halda jól en ekki gegn hvaða
verði sem er. Vinur sem líka
þjáist af krabbameini kemur í
heimsókn. Við tölum lengi sam-
an. Baksturinn geturbeðið, hann
er ekki svo mikilvægur. Það er
annað mikilvægara — vinur í
angist og neyð.
Tíminn er það dýrmætasta
sem við eigurn og öll höfum við
24 stundir til umráða á sólar-
hring. Það merkir að við erurn
rík! Hugsið ykkur ef við gætum
gefið hvert öðru meiri tíma í
jólagjöf. Það myndi áreiðanlega
gleðja meira en dýrustu gjafir.
Jólin eru góð hátíð og ég
hlakka til þeirra. Lifandi ljós,
jólagreinarog lifandi frelsari.
24. desember 1982
Aðfangadagskvöld. Fjölskyld-
an safnast saman í setustofunni,
dekkar borðið og tekur fram
jólagjafir. Við sitjum í hring og
þökkum Guði. Þökkum fyrir að
Lars er á lífi. Þökkum fyrir að ég
er svo gott sem góð. Þökkum fyr-
ir að við sem fjölskylda getum
haldið jól saman. Það er ekki
lengursjálfsagt.
Við opnum jólagjafirnar hvert
af öðru og gleðjumst sem böm.
Hvílíkjól!
Á jóladag varð Lars að vinna í
hafnsögubátnum. Þar sem ég er
ein með bömunum koma eftir-
köstin. Ég geng inn í herbergi og
græt. Veit ekki af hverju. Elsta
dóttirin, 16 ára, kemur inn til
mín. Hún reynirað skilja. Reyn-
irað hugga.
29. desember.
Nýárið nálgast. Viðburðaríkt
ár liggur að baki og nýtt ár bíður
okkar sem áreiðanlega verður
ekki síður viðburðaríkt. Við vit-
um ekki hvað nýtt ár ber í skauti
sér en það er gott að geta — hvað
sem á dynur — haldið sér í eitt-
hvað sem er öruggt — traust og
alltaf til staðar. Guð og fyrirheiti
hans. Ég les í Biblíunni minni
orð sem ylja og hugga:
„Óttast þú eigi, því að ég er
með þér. Lát eigi hugfallast, því
að ég er þinn Guð. Ég styrki þig,
ég hjálpa þér, ég styð þig með
hægri hendi réttlætis míns.“
Þessi orð höfða til mín hér og
nú. Ég vil mæta nýju ári með
opinn faðminn, lifa nærri lífinu,
nærri Guði.
Framhald í næsta blaði
EXPíO » ss
Undirbúningur EXPLO ’85 ernú
í fullum gangi. Friðrik Ó. Schram
liefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri ráðstefnunnar, auk hans
vinna að undirbúningi Kristjana
Diðriksdóttir og Eirný Ásgeirsdótt-
ir. Einnig leggur fjöldi sjálfboðaliða
hönd á plóginn, enn vantar samt
Ijölda fólks til starfa. Viljir þú
leggja hönd á plóginn, þá væri vel
þegið að þú hefðir samband við
skrifstofu EXPLO '85.
Ráðstefnan verður haldin í
Menntaskólanum við Hamrahiíð,
og hefst að kvöldi föstudagsins 27.
desember með almennri samkomu.
Kennsla hefst að morgni laugar-
dags, kennt verður alla morgna.
Síðdegis kemur tveggja tíma dag-
skrá, sem send er um gervihnött til
allra þáttökulanda EXPLO '85.
Dagskráin verður cins uppbyggð
alla ráðstefnudagana. Ráðstefnunni
lýkur síðdegis á gamlársdag.
Á kvöldin verða svo samkomur.
Þáttakendur í samkomunum vera
úr hinum ýmsu kristnu kirkjudeild-
um, sönghópar og ræðumenn. Eru
allar líkur á að samkomurnar verði
fjölbreyttar.
Allt kristið fólk, sem hefur áhuga
á hvatningu og fræðslu um virkari
þáttöku í safnaðarlífi er hvatt til að
taka þátt í ráðstefnunni. Ætlunin er
að hafa barnagæslu á staðnum, svo
fjölskyldufólk geti óhindrað tekið
þátt í ráðstefnunni. Einnig verða
seldar léttar veitingar.
Þctta er kjörið lækifæri til að laka
sér svolítið f'rí í jólafríinu og hug-
leiða það sem Guðsríki heyrir til.
Skrifstofa EXPLO ’85 veitir allar
nánari ttpplýsingar, þar fást fallcgir
kynningarbæklingar og tekið er við
skráningu á ráðstefnuna.
EXPLO ’85
Stakkholti 3,
105 Reykjavík
Sími91-27460