Afturelding - 01.01.1986, Blaðsíða 23

Afturelding - 01.01.1986, Blaðsíða 23
bárust í stríðum straumum. Hún hélt allt að 175 hljómleika á ári hverju. „Áheyrendur mínir hafa ávallt verið mjög uppörvandi,“ segir hún. „Þeir hafa byggt mig upp um leið og augu mín hafa °pnast fyrir því hvernig Guð notar mig. Ég finn sterklega fyrir því að við erum hluti sömu Qölskyldu, á því byggjast samskipti okkar. Eg eignaðist Önnu í maí 1984, °8 það breytti öllu. Ég fórað taka hlutina alvarlegri tökum. Við verðum að láta okkur skipta það sem hefur áhrif á börnin okkar eftir tíu ár. Ég vil að textarnir í söngvum mínum hafi boðskap og að Anna sjái mig lifa samkvæmt þeim. Nýjasta hljómplata þessarar athyglisverðu söngkonu heitir „Morning Like This“, hún hefur nú þegar hlotið afburðagóðar viðtökur beggja vegna Atlantshafsins. Hægt er að fá hljómplötuna í Versluninni Jötu, Hátúni 2, Reykjavík, (Sími 91-20735/25155).

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.