Afturelding - 01.01.1986, Blaðsíða 15

Afturelding - 01.01.1986, Blaðsíða 15
1. Það hefur dregið úr boðuninni um efstu tíma. Það líður oft langt á milli þess að maður rek- ist á þetta efni í töluðu eða rit- uðu máli. Það ernokkuð um lið- ið síðan ég heyrði kristna menn tala um að hér væri enn eitt táknið, sem segði fyrir um end- urkomu Krists, og ætti eftir að rætast. Ég get ekki sagt annað en ég hafi hlustað á samtalið með nokkurri undrun og vanþóknun. Er það mögulegt að menn, sem telja sig sannkristna, komi með slíkar útleggingar á okkar dög- um? Ég á hér einungis við það fólk, sem trúir að Biblían sé innblásið Guðs orð. Það fólk, sem fyrirlítur ekki spámannleg- an boðskap Heilagrar ritningar. 2. Fimm stóru spádómarnir um endurkomu Krists hafa ræst fyrir augunum á okkur: 1) „Gœtið að fikjutrénu og öðrum trjám", (Lúkas 21:29). Endurreisn Gyð- Endur- koma Krists Emanuel Minos ingaþjóðarinnar og sjálfstæði þjóðanna er staðreynd í dag. 2) „Þjóö mun rísa gegn þjóð og riki gegn ríki“, (Matteus 24:7). I dag eru átök þjóða og þjóðflokka í milli um allan heim og meira að segja sumstaðar í Evrópu. 3) „Þá verður hungur og landskjálftar á ýmsum stöðum", (Matteus 24:7). Hamfarir náttúrunnar um allan heim eru mönnum mjög vel kunnar. 4) „...átu menn og drukku, kvœntust og giflust...", (Matteus 24:38). Siðferðileg upplausn er útbreiddari en nokkurn grunar. 5) „...gróður- settu og byggðu ..(Lúkas 17:28). Efnishyggjan og keppni eftir efnislegri velgengni hefur aldrei verið jafn yfirþyrmandi og á okkar dögum. 3. Á þessum deyfðartímum kcmur fram fólk, sem vill kenna okkur að markaðssetja fagnaðar- erindið. Þetta hugtak, sem er að ræna okkur glöggskyggni, rekur uppruna sinn til heimshyggju og veraldlegrar afstöðu. Við eigum að markaðssetja þannig og hinsegin í trúarlegu tilliti. En það er því miður ekki hægt að höndla með eilífan sannleika um frelsi og glötun manna á sama hátt og kramvöruverslun. Sam- tími okkar þarfnast ekki rugl- ingslegrar hentistefnuguðfræði, sem er velþóknanleg föllnu mannkyni. Heldur fagnaðarer- indið um synd og náð, sannleika og lygi og þessi alvarlegu orð Jesú: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér“, (Matteus 16:24). Áður en Jesús kemur aft- ur koma þeir tímar að fólk þolir ekki fagnaðarerindið eins og það var gefið: „Því að þann lima mun að bera, er menn þoia ekki hina heilnœmu kenning, heldur hópa þeir að sér kennurum eflir eigin fýsnum sinum til þess að heyra þaö, sem kitlar eyrun", (11. Tímóteusarbréf4:3). KS 5085 - gé

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.