Afturelding - 01.09.1986, Side 23
Hún var send heim til aö deyja
Sjúkdómsgreining: Beinkrabbi
hefur lesið um umhyggju og ást
Guðs mér til handa í reynslum
mínum. Eftil vill hefur þú tekið
ákvörðun um að koma andleg-
um málum þínum á hreint. Þér
er ljóst að þú ert meira en líkami
og sál. Þú átt einnig anda, sem
syndin hefur hindrað frá samfé-
lagi við Guð. Þú trúir því að
Guð hafi gert sitt til að endur-
nýja samfélagið við þig. Þú getur
endurfæðst og orðið Guðs bam
fyrir trúna á Jesúm Krist.
Þér er einnig ljóst að nú er það
undir þér og ákvörðun þinni
komið hvort aftur kemst á
samfélag milli þín og Guðs.
Úrslitaskrefið er þitt og byggist á
viljaákvörðun um að trúa á Jesú.
Þegar þú kemur til Guðs og
játar synd þína, þá er friðþæg-
ingardauði Jesú á Golgata gjald-
ið, sem greitt er í þinn stað. Þú
færð fyrirgefningu, vegna þess að
Jesús tók á sig refsingu þína. Þú
verður Guðs barn af náð fyrir
trúna á Jesúm. Þegar þú vilt við-
urkenna trú hjarta þíns á Frels-
arann hefur þú eignast frelsið.
Þú færð að reyna mesta undur
lífs þíns, því þú verður eitt með
Jesú, honum sem sigraði vald
myrkursins. Eitt með honum,
eins og greinin er eitt með trénu.
Þú hefur allar ástæður til að
finna til öryggiskenndar.,,Gang-
ir þú þœr (brautir ráðvendninn-
ar, innsk. þýð.), skal leiö þín
ekki verða þröng, og hlaupir þú,
skalt þú ekki hrasa. Haltufast i
agann, slepptu honum ekki,
varðveittu hann, þvi að hann er
lífþitt", (Orðskviðir 4:12-13).
Þú spyrð hvernig þú fáir lifað í
þessu öryggi, sem ekki bregst
hvað sem á dynur.
Mig langar að svara með orð-
um Jesú: „Hver sem heyrir þessi
orð mín og breytir eftir þeim, sá
er líkur hyggnum manni, er
byggði hús sitt á bjargi. Nú skall
á steypiregn, vatniö Jlœddi,
stormar blésu og buldu á þvi
húsi, en það féll eigi, því það var
grundvallað á bjargi", (Matteus
7:24-25).
Guðs orð er sú andlega fæða
sem líf þitt þarfnast til að dafna
og vaxa. Því meira sem þú færð
af heilbrigðri fæðu við að lesa
Biblíuna, þess sterkari og örugg-
ari verður þú í andlegu lífi þínu.
„Ef þér erttð stöðugir í orði
mínu, eruð þér sannir lœrisvein-
ar minir og munuð þekkja
sannleikann og sannleikurinn
mun gjöra yður frjálsa", sagði
Jesús (Jóhannes 8:31-32). Hann
biður í bæn fyrir lærisveinunum:
„Helga þá í sannleikanum. Þitt
orð er sannleikur”, (Jóhannes
17:17).
Ef þú lest Biblíuna og iðkar
það sem hún kennir færðu að
reyna undursamlegt frelsi, óháð
ytri kringumstæðum. Tveir fylg-
isveinar Jesú, þeir Páll og Sílas,
fengu að reyna þetta. Og ég fékk