Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1934, Page 26
OANGUB TUNGL8 OG 8ÓLAR Á Í8L.ANDI.
í þriðja dálki hvers mánaðar, sem heflr ylirskriftina »T i h« (tungl
i hásuðri), og í töbiunni á blaðsiðu (17) er sýnt, hvað kiukkan er
eftir íslenzkum meðaitíma, þegar tunglið og sólin eru í liásuðri
i Reykjavik. En vilji menn vita, hvað klukkan sé eftir islenzkum
meðaltima, þegar tunglið eða sólin eru i hásuðri á öðrum stöðum
á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleiðréttingu«
á Reykjavikurtölunni. Verður hún — 4 minútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavik, og + 4 min. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavik. T. d. er
Raufarliöfn um sez lengdarstigum austar en Reykjavik; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 min. og 5. júli er sól i hásuðri frá
Raufarliöfn þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
flrði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavík og lengdarleið-
réttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er þvi tungl í hásuðri frá Flatey
kl. 10 36 f. m. (10 32 + 0 04 = 10 36).
Sólargangurínn i Reykjavik er tilgreindur i almaunkinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn fró sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeiidarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara niður fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavikurtölunni á sama hátt sem við sól
eða tungl i hásuðri. en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarieiðréttingin fer eigi að elns eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum i Reykjavik. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðréttlng fyrir hvert hálft stig,
noröar og sunnar en Reykjavik, þegar sólargangurinn i Rvik stendur
á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitíf (+), þegar sólargangurinn
lengist vegna hennar, en negatif (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tima sólarlagsins i Rvlk,
en dregin frá sólaruppkomutimanum. Sé breiddarleiðréttingin negatif
(—), verður að taka forteiknið til greina.
Dæmi: Sóiargangur 1. maí á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2‘/« stigi norðar en Rvik.
Penna dag er sólargangur i Reykjavlk 16 st. 40 min. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 2'/i stig norður og sólargang 16 st. er + 16
mín. en fyrir 17 st. + 23 mln. og fyrir 16 st. 40 min. verður breiddar-
leiðréttingin þvi + 21 min. Lengdarleiðréttingin er — 24 min.
í Reykjavtk . . . . su. 4 06 sl. 8 46
Breiddarleiðrétting . — 21 +21
Lengdarleiðrétting . — 24_______— 24
ÁRaufarhöfn .... su. 3 21 sl. 8 43
Annað dæmit Sólargangur 13. nóv. í Flatey & Breiöafiröi, sem er
1 stigi vestar og l'/i stigi norðar en Rvik. Sólargangur i Reykjavik
er 6 st. 43 min.
í Reykjavik...........su. 8 50 sl. 3 33
Breiddarleiðrétting . +11 — 11
Lengdarleiðréttlng . +4_________+ 4
1 Flatey..............su. 9 05 sl. 3 26
(22)