Muninn - 01.05.1963, Blaðsíða 18
LJOÐ
Bíbí
syngja fuglar
himinsins.
Murrumsurr í moldinni
þrymur
Báran svettist á skeri
og blaka.
Bíum
kvaka álftir
á vötnum.
Döggin glampar á grösunum
Börn leika tínaberíaldingarði
á götunum
bíum bamba.
Dó dó
raular amman
á stokknum.
Hamarinn glymur við járnið
meðan blóð sakleysingjans rennur
og rennur
og rennur
og rennur
og dumma.
- eff.
LAUFBLÖÐIN
Litla barn, hví leikur þú ekki
að kubbum á vatni,
bílum í sandi,
eins og allir aðrir?
Leiktu þér ekki
að tálfögrum laufblöðum,
grænum — ögrandi,
svífandi í loftinu,
rennandi í lækjunum.
Þegar ég var ungur,
lék ég að laufblöðum,
skínandi í morgunsól,
gylltum á síðkvöldum,
horfði á þau,
talaði við þau,
hló með þeim. . . .
en þegar fór að hausta og grána,
tóku þau að gulna og visna,
skrælna og deyja.
Þá grét ég oft og lengi.
98 MUNINN
D. B.