Muninn - 15.03.1972, Blaðsíða 33
Viáurstyggilegt tilrædi vid hina
Vestrænu Menningu
Sú mikla óhæfa, stílaskriftir, er í
hávegum höfð í öllum framhaldsskolum
hérlendis. Eg hygg þó, að fæstir geri
sér grein fyrir, hversu miskunnarlaus
og sóðaleg mispyrming á tungumálvun Dana,
Breta, Þjoðverja, Prakka, og hinna fornu
Rómverja stílaskrifin eru. Oft hafa
þjóðir lumbrað hver á annarri mun létt-
vægari móðgunna vegna. Islendingar, sú
ofurfriðelska þjóð, eru með slíkri
vesælli lágkúru óbeirvt að ögra og skora
framantaldar þjóðir á hólm. Ef til
vill sitja þær ekki lengur á sér þegar
herinn er farinn frá oss. (Fornróm-
verjar verða af skiljanlegum ástæðum
að láta sér nægja snríninga í grafhýsum
símun, þó svo Caesar magnus erat).
Imyndum okkur nú, að hópur nemenda
undir stjórn kennara síns, viðaði að
sér fánum og sendiherrum umræddra þjóða,
héldi því næst á t.d. Lækjartorg,
traðkaði þar og fíflaðist á fánunum,
bæri síðan el& að peim og snaraði herr—
unum upp í nálæga ljósastaura. Ramm-
pólitískar húsmæður í Vesturbænum mundu
að vanda skýra landslýð frá afleiðingum
í Velvakanda, en slíkt væri óþarft; hver
Bæmilega i skyni borin (ath. hér á ekki
að standa maður) hlyti að sjá þær T
hendi sér. 0, tempora! o, mores!
Varla má snerta fána og sendiherra, en
málin má afskræma og niðurlægja að________
vild, enginn stekkur upp á nef sér
þess vegna.
Enn omennskara verður athæfi þetta,
þegar haft er í huga að þjóðir þessar
(að Prökkum og Fornrómver jtim undanskild-
um) eru starfsbærðum Islendinga í varnar-
bandalaginu NATO. Ásamt þessum þjóðum
verja Tslendingar hrörnun Vestrænu Lenn-
ingarinnar gegn árásarbandalaginu í
austri. Verja góðu mennina í vestri
gegn vondu mönnunum í austri, afar ein-
falt, ekki satt? Ásamt þessum úrvals-
þjóðvun styðja íslendingar við bak
fastistastjórnanna í Grikklandi, Portú-
gal og víðar. Ha...? Að læðast að
baki bræðra sinna með illu hugarfari
eru ékaflega ómerkileg vinnubrögð.
Herinn hverfur án efa til síns heima
von bráðar, eins og ég gat um hér að
framan, gæti vel farið svo, að bræð-
urnir noti tækifærið og bretti upp er-
marnar. Þess vegnahljóta þeir allir.,
sem unna landi og þjóð, að taka höndum
saman og berjast fyrir tvennu: í fyrsta
lagi, að stílagerð verði lögð niður
fyrir fullt og allt, og í öðru lagi,
að ríkisstjórnin sendi þjóðum þessum
opinbera afsökunarbeiðni á framferði
Islenzku þjóðarinnar.
Högni Djurhuus.