Muninn - 01.04.1976, Page 46
Öld.....
Blm.: Nú eruð þér heima-
vinnandi húsmóðir. Hvernig
gengur þér að samræma námið
og heimilisstörfin?
Sigfr.: ílg held að það sé
léttara fyrir húsmæður að
stunda petta nám heldur en
fólk sem er í fastri vinnu.
kví að heimavinnandi hús-
móðir getur ráðið sínum
vinnutíma, og fyrir hús-
rnóður með 3 - 4 börn er
petta fullkomið starf og
vel pað. Þegar ég iæri
heima þá reyni ég á morgfc-
tana að byrja á því að lesa
svolítið og síðan hugsa um
það, sem ég hef lesið, á
meðan ég er að vinna.
Þegar tækifæri gefst les
ég meira.
Blm.: Sá kennslustunda-
fjöldi sem Öldungadeildin
fær er mun minni á mámsefni
en í unglingadeildinni.
Finnst pér ekki heimanámið
vera þess vegna fullerfitt?
Sigfr.: Ég hef ekki saman-
burð, en ég bxst við því og
veit raunar, að það er miklu
meira sem við hljótum að
þurfa að vinna heima en þið.
2g gerði mér alltaf grein
fyrir því að þetta yrði
erfitt en petta er ekkert
erfiðara en ég bjóst við.
Blrn.: ^kk fyrir.
Jón Viðar Guðlaugsson
stundar fullt starf með
náminu, og lögðum við fyrir
hann nokkrar spurningar.
Blm.: Hver er ástæðan fyrir
pví að þú hófst nám hér í
skólanum?
Jón: Hún er margþætt. £g
hugsa samt að það sé fyrst
og fremst það að ér er neð
visst undirstöðumám, sem ég
ætlaði að auka og endurbæta,
en til þess þurfti ég að
afla rnér að minnstakosti
stúdentsprófs í þrem greinum,
Ég hugsaði sem svo, úr því
ég á annað borð færi að
læra , það væri eins gott
að taka þetta nokkuð
"grundigt," og svo líka
þegar ég komst að því að
pað var ekki nema eitt af
pessum þrem fögum, sem ég
ætlaði að læra var kennt í
vetur þ.e.a.s. stærðfræði,
eðlisfræði og efnafræði.
Bg var búinn að fá grænt
ljós í öðru námi ef ég
hefði stúdentspróf í þessu.
Blm.: Hvað var það?
Jón: Það er svonefnd
lyfjatækni. Og þeir hjá
háskólanum sögðu mér að
það væri möguleiki fyrir
mig að komast inn í deildina
með þessi þrjú stildentspróf.
44