Dýravinurinn - 01.01.1887, Síða 17

Dýravinurinn - 01.01.1887, Síða 17
17 „Heilt ár“, andvarpaði drottningin. „Hann á að ferðast", sagði álfkonan. f>ú getnr gjört Kann úr garði eins og þjer þóknast, en nú vil jeg ekki tala eitt orð framar nm þetta mál. —“ „Viltu ekki segja mjer“? stundi drottningin upp. „Nei, jeg livorki vil eðu get sagt þjer neitt. f>ú verður að bera fullt traust til mín, ef jeg á að geta lijálpað þjer. En nú skulum við koma og skoða Ketafos-liellinn, og svo getur þú notið þeirrar ánægju að sjá, livað öllum dýr- unum líður vel, sem jeg hef hjer allt í kringum mig“. „Jeg vil heldur gjöra það, þegar jeg kem að heimsækja þig i næsta skipti“, sagði drottningin og kvaddi álfkonuna. Hún var mjög áhyggjufull þegar hún kom, og hún var litlu glaðari þegar hún steig upp í vagninn aptur. Hiin skýrði ráðgjöfum sínum frá að það væri vilji sinn að Almansor færi að ferðast og væri burtu eitt ár, en þangað til hann kæmi heim aptur, kvaðst hún mundi ala aldur sinn með föstum og bænahaldi. m. Fyrsta myndbreytingin. Nokkrum dögum síðar hjelt Almansor konungsson af stað, og hafði marga og tíginborna fylgdarmenn. Kongssonur reið hesti forkunnar fögrum, er Sohair nefndist. Hestur þessi var hvíturaðlit, oghöfðu hirðskáldin líktlithans við gljáann á marmaranum í liöllinni, þegar tunglið skein á halfarmúrana. Hundur konungssonarins, er kallaður var Zopas, hafði átt að vera heima, en hafði þó hlaupið með. Zopas var nefnilega mikill vinur hestsins; því þeir höfðu opt átt um sárt að binda í sameiningu, og opt þegar Zopas varð fyrir illri meðferð, þá hljóp hann út í hesthúsið til vinar síns og sleikti á honum hófana og svo töluðu þeir saman liver á sínu máli. En nú var Zopas glaður og kátur. * * -X- Almansor keyrði hest sinn sporum og var brátt kominn langt á undan öllum förunautum sínum. Drottningin hafði falið gamla ráðgjafanum sínum á hendur að fylgja syni sínum úr garði, og sjá um að allt færi fram með ráðdeild og reglusemi. Káðgjafinn kallaði þvi á Almansor og bað liann að ríða minna, en kongsSÖnur gaf þvi engan gaum og reið allt hvað aftók. Almansor sat vel á hesti, en beitti sporunun áka-flega. Sohair hoppaði upp við sársaukann, en fleygði þó ekki húsbónda sínum af' sjer, þó hann hefði átt það fullkomlega skilið. „Sliáld mín liafa sagt um | ig, Sohair, að þú værir skjótur sem ör, en í dag vil jeg kenna þjer að vera liraðfara sem elding“, hrópaði Almansor. Reiö liann nú enn haröara enn áður, en blóðið rann niður af hestinum beggja megin.

x

Dýravinurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.