Dýravinurinn - 01.01.1887, Qupperneq 28

Dýravinurinn - 01.01.1887, Qupperneq 28
Útroðnar gæsir. yndin, sem lijer má sjá, lýsir mjög einkennilegum ósið, sem íslendingar naumast liafa lieyrt getið. það er kona, sem er að troða mjölkekkjum niður í hálsinn á gæs. j>að er gjört til þess að fuglinn fitni fljótt og verði betri til frálags. En þó nægir það ekki að fylla skepnurnar þannig á óeðlilegan hátt, því auk þess banna menn þeim að hreyfa sig. Hengja menn því gæsirnar upp í poka og draga saman opið, svo höfuðið stendur eitt uppúr. I þessurn pokum verða aumingja skepnurnar að sitja dögum ogjafnvel vikum saman, þangað til fitusýkin er orðin hæfilega mikil og lifrin er orðin svo bólgin, að hún getur orðið „herramanns matur11. í stað þess að hengja gæsirnar upp í poka hafa sumir |>ann sið, að reka nagla gegnum sundfitina og geta gæsirnar þá náttúrlega heldur ekki hreyft sig. Mai'gir menn, sem hafa vit á, halda því fast fram, að þetta sje ekki greiðasti vegurinn til þess að gjöra gæsirnar feitar, og er því ekki ólíklegt að þessi ósiður leggist niður. 1 gömlum tröllasögum er sagt frá því, að tröllskessurnar hafi alið kongssynina, til þess að hafa feitt og gott kongakjöt til jólanna. Kongssynirnir sluppu vanalega frá jieim, áður en þeir voru orðnir nógu feitir, en ])ó þær hefðu slátrað kongssyninum hefðu þær líklega snætt hann með góðri lyst. En þær voru líka tröllskessur. En undarlegt er að siðaðir menn ogkonur skuli ekki hafa ógeö á að leggja sjer til rnunns matinn af |>eim ske])num, sem þau vita að liafa verið kvaldar svona miskunnarlaust, aðeins til |)ess, að veita þeim lítilfjörlega stundargieði.

x

Dýravinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.