Dýravinurinn - 01.01.1887, Síða 30

Dýravinurinn - 01.01.1887, Síða 30
80 Farðu vel með dýrin. y hef lieyrt margt það um skepnur á íslandi, sem vert væri í frásögur að færa. En af því langt er um liðið, síðan jeg heyrði ýmsar af sögum þessum, þá hef jeg nú gleymt mörgum þeirra, enda vona jeg, að eigendur skepnanna, sem rnargir eru mjer að góðu kunnir, muni síðar skýra nákvæmar frá viðburðunum. Yerður því hjer aðeins drepið á fátt eitt. Optheí jeg aumkastyfir liestaþá, sem brennivínsberserkirnir eiga. Vani þeirra er sá, að ríða þvínær í einum spretti milli bæjanna, svo hart sem liesturinn getur komist; og eigi ber það sjaldan við, að svipan er til beggja hliða á‘jafnharðri ferð. það sjálfsagt, að „berja fótastokkinn" þarf' að fylgja með. þegar svo heim á lilaðið er komið, er hesturinn löðursveittur og lafmóður; þar fær hann að kasta mæðinni, meðan eigandinn er að fá sjer í staupinu; en í stað þess, að hesturinn fái að hvíla sig úti í liaganum, er hann bundinn við hestastjakann, eða steininn, hvernig sem veður er. Svona gengur bæ frá bæ, þar til kvöld er komið, eða eigandinn er kominn heim til sín. Atakanlegt er stundum að sjá þá umhyggjusemi og tryggð, sein hestar sýna þessum fyllirútum, þrátt íyrir meðferðina. Jeg hef þekkt hesta, sem stóðu yfir eigendum sínum, er höfðu dottið af baki þreifandi fullir og lágu sofandi við veginn. Hestarnir biðu þangað til eigandinn vaknaði og voru honum hjáiplegir til að komast á bak, svo þeir gætu borið hann heim. það er margreynt um ýmsa hesta, að þótt hesturinn sjemesti fjörgapi, verðurhann stilltur ef drukkinn maður situr á lionum. Sömuleiðis eru liestar opt gætnari ef kvennmenn sitja á þeim en karlmenn. það er einsog hesturinn finni það, að sá situr á honum, sem ekki er fær um að fara harða ferð eða ógætilega. Margar sögur eru um það, þegar hestar hafa ratað til bæja í náttmyrkri eða kafaldsbil, en eigandinn verið svo viltur, að liann ekkert heíur vitað livar liann var og hvert átti að stefna; á þann hátt hafa margir hestar bjargað lífi eiganda sinna.

x

Dýravinurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.