Heimilisblaðið - 01.03.1953, Page 3
HEIMILISBLADIÐ
42. árgangur, 3.—4. lulublaS — Reykjavík, marz—apríl 1953
%þór Erlendsson
SVANASÖNGUR A HVlTÁRVATNI
Sumarið 1936 fór ég mína fyrstu ferð inn til öræfanna við
Hvítárvatn. Ritaði ég greinarkorn um för þessa, sem birtist
i Sunnudagsblaði Alþýðublaðsins sama ár. Ég var þá eigi
eins fróður um örnefni á þessum slóðum og æskilegt hefði
verið og studdist því að mestu við upplýsingar frá öðrum
I þeim efnum. En því miður reyndust sumar þær upplýs-'
ingar eigi svo traustar sem skyldi og eru því nokkrar mein-
legar missagnir í umræddri grein. Hefur mig lengi langað
að fá úr þessu bætt, og hef ég því mælzt til þess, að Heimilis-
blaðið birti þessa frásögn mína endurbætta, — og fer hún
hér á eftir. — E. E.
rla morguns 19. júlí (1936)
var ég á ferð upp Hruna-
^annahrepp, ásamt Erlendi
^róður mínum, og var förinni
'Taitið að Hvítárvatni. Veður
Var hið bezta, en útsýni ekki
sama skapi gott, því mikl-
ar skýslæður teygðu sig eins
°S banin voð um himinhvelið
drógu mjög úr skini sólar-
iririar, en gráir þokubólstrar
yrgðu víða fyrir útsýni til
fjalla. En við vorum sann-
færðir um, að þetta myndu
aðeins vera síðustu leifarnar
af hinni miklu þokubreiðu,
sem nóttin hafði sveipað yfir
landið, og að þær myndu
hverfa með öllu, þegar fram
á daginn kæmi. Sú varð lika
reyndin, því þegar leið að há-
degi, tók að birta í lofti, og
litlu síðar var hver einasti
skýhnoðri gersamlega horfinn
og sólin tekin að hella geisla-
flóði sínu yfir umhverfið. Var
nú útsýni hið bezta og fagurt
um að litast, því landslag er
þarna mjög breytilegt og svip-
mikið, einkum þegar ofar
dregur. Sérstaklega eru það
fjöllin upp af Biskupstungum,
sem vekja athygli ferðamanns-
ins, og er gaman að veita því
eftirtekt, hvernig þau breyta
afstöðu sinni hvert til annars
um leið og áfram er haldið.
— En fyrsti staðurinn, sem á
sérkennilega náttúrufegurð að
bjóða, eru vafalaust hin svo-
nefndu Brúarhlöð. Þar hefur
Hvítá smám saman myndað
ýmsar einkennilegar kletta-
myndanir á óralöngum tíma.
Einkennilegust er bergnál sú
hin mikla, sem þarna stend-
ur mitt í beljandi árstraumn-
um og hefur eigi látið straum-
þungann kúga sig, þrátt fyrir
hin ægilegustu átök hans, þeg-
ar ofsaflug hleypur í ána á
veturna og vatnið fer hamför-
um eftir árgljúfrinu. En Brú-
arhlöð eru einnig gædd ann-
.... '
riðjökullinn. Til hœgri á myndinni sést hvar vatniíi rennur undir jökulröndina. Kemur þaö jram nokkur
hundruS metrum austar gegnum jjallsöxlina.