Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1953, Side 35

Heimilisblaðið - 01.03.1953, Side 35
Tilkynning; frá H.f. Eimskipafélagi Islands um endurmat á Mutabréfum félagsins. Stjórn H.f. Eimskipafélags íslands hefur samþykkt að leggja fyrir næsta aðalfund félagsins tillögu um, að öll hlutabréf í félaginu verði innkölluð og í stað núgildandi hlutabréfa fái hluthafar ný hlutabréf sem verði að fjárhæð tífalt núverandi nafnverð hlutabréfanna. Stjórn félagsins hefur orðið þess áskynja, að einhver brögð séu að því að leitað sé eftir kaupum á hlutabréfum félagsins. Álítur stjórnin það illa farið, ef hlutabréfin safnast á fáar hendur, því að það hefur frá stofnun félagsins verið talið mikilvægt fyrir þróun þess og vinsældir, að sem allra flestir landsmenn væru hluthafar. Það er álit stjórnarinnar, að endurmat á verðmæti hlutabréfanna geti átt þátt í því að aftra sölu þeirra. Reykjavík, 28. janúar 1953. Stjórn H.f. Eimskipafélags íslands. -——_________________________________________________________________) H.F. Eimskipafélag íslands. Adalfundur Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands, verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 6. júní 1953 og hefst kl. 1,30 e. h. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1952 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem ha faaðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 2.—4. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er, 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi siðar en 26. maí 1953. Reykjavík, 28. janúar 1953. STJÓRNIN. [71] HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.