Heimilisblaðið - 01.03.1953, Blaðsíða 35
Tilkynning;
frá H.f. Eimskipafélagi Islands um endurmat á Mutabréfum félagsins.
Stjórn H.f. Eimskipafélags íslands hefur samþykkt að leggja fyrir næsta aðalfund
félagsins tillögu um, að öll hlutabréf í félaginu verði innkölluð og í stað núgildandi
hlutabréfa fái hluthafar ný hlutabréf sem verði að fjárhæð tífalt núverandi nafnverð
hlutabréfanna.
Stjórn félagsins hefur orðið þess áskynja, að einhver brögð séu að því að leitað
sé eftir kaupum á hlutabréfum félagsins. Álítur stjórnin það illa farið, ef hlutabréfin
safnast á fáar hendur, því að það hefur frá stofnun félagsins verið talið mikilvægt fyrir
þróun þess og vinsældir, að sem allra flestir landsmenn væru hluthafar.
Það er álit stjórnarinnar, að endurmat á verðmæti hlutabréfanna geti átt þátt í
því að aftra sölu þeirra.
Reykjavík, 28. janúar 1953.
Stjórn H.f. Eimskipafélags íslands.
-——_________________________________________________________________)
H.F. Eimskipafélag íslands.
Adalfundur
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands, verður haldinn í fundarsalnum
í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 6. júní 1953 og hefst kl. 1,30 e. h.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá
starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til
úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1952 og efnahagsreikning
með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar
frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt
samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem ha faaðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa
á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 2.—4. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er
eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur
til skrásetningar, ef unnt er, 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi siðar en 26. maí 1953.
Reykjavík, 28. janúar 1953.
STJÓRNIN.
[71]
HEIMILISBLAÐIÐ