Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1957, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.01.1957, Blaðsíða 9
En eigi að síður býr hann yfir fegurð, sem er svo furðuleg, að hún tekur fram nálega öllu öðru, sem ber fyrir augu dauðlegra manna. Sú fegurð er fólgin í hreinleik mjall- ar og þeirri uppheimadýrð, sem opnast á heiðríkum vetrarkvöldum, þegar fortjald himinsins dregst til hliðar. 1 blárri hvelfing- unni gefur þá að líta ótölulegan grúa tindr- andi stjarna, sem dreifa ljóma sínum víðs- vegar um snækrýnda jörðina. Hámarki sínu nær undrafegurð þessi, þegar blikandi norð- urljósin þjóta til og frá um geiminn, leiftr- andi í öllum regnbogans litum, en tungl og stjörnur kasta birtu sinni á drifhvita fann- breiðuna, sem hylur landið frá hafi til hafs. Á slíkum stundum er sem okkur, börnum jarðar, opnist innsýn í „musteri allrar dýrð- ar“, og þá fyrst lærum við að meta „vorn þegnrétt í ljóssins ríki“. ★ Norðurljósin eru það himnaskraút, sem mest hefur heillað mig. Oft hefur fegurð þeirra og regintign verið mér undrunarefni, en þó eigi annan tíma svo mjög, sem eitt skipti fyrir mörgum árum. Ég var þá stadd- ur hér heima við bæinn — Helgastaði í Éiskupstungum — og var að virða fyrir ttiér stjörnuskrýddan stjörnuhimininn. Sá ég bá hvar dauf norðurljósarák teygðist skyndi- lega upp á austurhluta himinsins. Hún fór órt stækkandi og varð innan lítillar stund- ar að breiðu belti, sem náði þvert yfir geim- lnn, frá austri til vesturs, svo að endar þess ^irtust nema við sjónarrönd beggja vegna. Sveiflaðist belti þetta stöðugt til og frá, eins og fyrir sterkum rafstraum, og leiftr- andi litaskrúð lék um það allt. Brátt mynd- aðist annað belti samskonar, en var þó tals- Vert minna. Þessi tvö norðurljósabelti tóku aiðan að þenjast út, unz þau féllu saman 1 eitt ólgandi, litauðugt haf, sem bylgjaðist ^ram og aftur um himinhvelið á afar miklu svseði. En jafnframt skaut upp rauðleitum l°gatungum utan þessa svæðis, sem breidd- Ust einnig óðfluga út og sameinuðust brátt ^egin norðurljósabreiðunni, svo að úr varð allsherjar víðátta dásamlegra litbrigða. Var þá nálega allur himinninn - á tímibili - eitt ólgandi norðurljósaskraut, sem flæddi í Úfógrum, æðandi bylgjum um hásali himin- Vlðáttunnar. Fór þessu fram dálitla stund. En brátt tók að draga úr orku norðurljós- anna, sterkustu litir þeirra dofnuðu og þann- ig hvarf þessi óviðjafnanlega fegurð smám saman og umbreyttist í litdaufar slæður, sem hurfu loks með öllu. ★ Hin æðsta fegurð, sem mannleg augu fá litið, tilheyrir þannig vetrinum. og er hon- um bundin. — En því miður er þessi feg- urð svo skammvinn og sjaldgæf, og oft er land og byggðir umvafið niðamyrkri að nóttu til, en kólguþrungnir byljir geysa yfir víð- áttumikil svæði. Þýðviðri eiga sér þó eigi sjaldan stað á veturna, en þau koma þá oft- ast fram í stórviðrum, fossandi regni og miklum stormi, svo að þau eru litlu skemmti- legri en frostið og snjókoman. Sem betur fer, er þó vetrarveðráttan ekki alltaf í þessum ham. Logn og bjartviðri eru einnig algeng. Geta slík hægviðri stundum haldizt dögum og jafnvel vikum saman. Þannig líður veturinn smám saman. 1 fyrstu verður skammdegismyrkrið stöðugt svartara og svartara. Það er eins og landið sé að klæðast í einhvern álagaham, sem óþekktar nornir hafi tileinkað því. Dauða- þögn ríkir yfir öllu. Hér og þar standa bæ- irnir upp úr jökulkrýndri mörkinni, eins og þeir hafa gert vetur eftir vetur í þúsund ár. Dagarnir eru hver öðrum líkir, og hin þung- lyndislega blæja, sem yfir öllu hvílir, nær stöðugt sterkari tökum á landi og lýð. Mitt í þessum ömurleika lífs og náttúru koma jólin. Þá er eins og skammdegis- myrkrið sé skyndilega rofið af himneskum ljóma. Kveikt er á jólakertum og hvert fá- tækt hreysi verður að dýrðlegri höll, því sjálfur Guð er þar gestur. — Litlu síðar byrjar nýtt ár og nýir tímar færast yfir mannlífið. Um þessi tímamót fer birtan aftur að færast í vöxt, undur hægt að vísu, en mark- víst og örugglega. Dag frá degi hækkar leið sólarinnar upp í himinhvelið, og ylríkir geisl- ar hennar verma kalda jörðina í sívaxandi mæli. En auðnardrungi vetrarins þokar treg- lega, þótt sólin skíni. Landið er jöklum hul- ið. Og yfir þessari dauðablæju ríkir svo mik- il kyrrð og friðarhöfgi, að undrum sætir. Ekkert hljóð rýfur þögnina. Enginn söngur 7

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.