Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1957, Blaðsíða 23

Heimilisblaðið - 01.01.1957, Blaðsíða 23
ásáttir við piltinn um verðið, keyptu kúna fyrir geitarverð og héldu síðan leiðar sinnar. Þegar þeir voru farnir, stóð pilturinn stundarkorn eftir á götunni og taldi saman Peningana, sem hann hafði fengið fyrir grip- inn. Það var ekki mikil upphæð, og hann sá strax eftir kaupunum. Hann hugsaði með sér: Þetta hlýtur að hafa verið kýr, sem ég kom með, en ég hef verið það fífl að selja bana fyrir geitarverð. Hann var líka hræddur við pabba sinn. Hann vissi, að hann mundi fá skammir, þeg- ar hann kæmi heim með svona litla pen- inga. Og nú fór hann að velta því fyrir sér, hvernig hann gæti bjargað þessu við. Að fokum þóttist hann hafa fundið gott ráð °g hélt nú af stað í áttina þangað, sem hann hafði síðast séð til mannanna. Eftir skamma stund kom hann á markaðstorgið, og þar sá hann, að mennirnir voru að bjóða til kaups kúna, sem þeir höfðu keypt af honum. Pilturinn stóð þar sem lítið bar á hon- Um og fylgdist með sölunni, og hann sá, að nú seldu þeir kúna, sem hann hafði selt beim fyrir geit, fyrir venjulegt kýrverð. Hann skildi nú, hversu þeir höfðu gabbað ^ann, og hann hugsaði með sér: — Jæja, fcið hafið þá gabbað mig og prettað, en við skulum sjá, hvort ég get ekki líka prettað ykkur. Síðan gekk hann inn í næsta veitinga- kús, fékk veitingamanninum vissa peninga- uPphæð sem fyrirframgreiðslu og sagði um leið: Eftir stundarkorn kem ég hingað með tvo menn og drekk fyrir þessa peninga, sem ég fékk yður. Og þegar ég fer út aft- Ur> ætla ég að lyfta húfunni, sveifla henni UPP í loftið og spyrja, hvort við séum ekki kvittir, og þá verðið þér að svara játandi. _ Það skal ég sannarlega gera, það er sjálfsagt, svaraði veitingamaðurinn og lof- aði að fara í öllu eftir fyrirmælum piltsins. Pilturinn gekk síðan inn í tvö veitinga- _ s í viðbót, borgaði fyrirfram og komst að s°mu samningum við veitingamennina. Síð- aP hélt hann aftur út á torgið. Mennirnir, sem keypt höfðu kúna hans, voru þar enn- ua> °g þegar þeir komu auga á hann, komu ueir á móti honum og vildu spjalla við ann. Þeir spurðu hann með glensi miklu, v°rt hann vildi ekki drekka með þeim skál Nýi forsætisráðherrann. Harold McMillan, sem tók við forsæti brezku ríkis- stjórnarinnar af Eden, sézt hér ræða við blaðamenn. fyrir þeim kaupum, sem þeir hefðu gert, þar sem þeir hefðu létt honum svo m]Og fyrirhöfnina að koma geitinni í verð. __ Jú-ú, við getum svo sem gert það, svaraði pilturinn og tók þá með sér ínn 1 næsta veitingahús, þar sem hann atti mm fyrirframborgun sína. Þeir fengu ser að drekka, sátu þar stundarkom og vildu sið- an halda af stað. Pilturinn lyfti húfu smni, sveiflaði henni og spurði veitingamannmn: — Erum við ekki kvittir? __ Jú, ég er nú hræddur um það, maður minn, svaraði veitingamaðurinn, við erum kvittir. Þeir gengu nú út úr veitingastofunm og löbbuðu spölkorn eftir götum borgarinnar. Mennirnir voru mjög undrandi á því, að pilt- urinn skyldi ekki hafa þurft að borga, og þo hafði veitingamaðurinn sagt, að þeir væru kvittir. Samt þorðu þeir ekki að spyrja piltinn, hvernig á þessu stæði, en héldu á- fram göngunni með honum. Þegar þeir komu að næsta veitingahúsi, sagði pilturinn: __Við skulum athuga, hvað þeir eiga að drekka hérna. Hinir voru til í það, og þeir gengu inn 1 veitingahúsið. Pilturinn bað veitingamann- inn að færa þeim eitthvað að drekka, og 21

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.