Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1957, Page 10

Heimilisblaðið - 01.01.1957, Page 10
Flýðu ofríki og kúgun » Þúsundir Ungverja notuðu tækifærið, þegar nokkra mánuði slaknaði á heljartökum ein- ræðisins í landi þeirra á síðastliðnu ári, og flýðu, oft við erfiðan leik, yfir landamærin til nágrannalandanna. Þessi þreytta og grát- bólgna móðir hefur borið barn sitt á bak- inu langa vegu til hins langþráða frelsis. Allt, sem hún átti, hefur hún misst, og eina athvarf hennar er aðstoð hjálpfúsra mann- eskja, sem um allan hinn lýðfrjálsa heim hafa skipulagt samtök til hjálpar flóttafólk- inu. Margir hafa þegar tekið sér bólfestu og eignazt samastað, m. a. hér á landi, þótt enn verði þúsundir að bíða í von og trú í flóttamannabúðunum í Austurríki, All-margt þekkt fólk á sviði lista, vísinda og íþrótta var í hópi flóttafólksins, sem leit- aði frelsisins. Á þessari mynd sjáum við ung- verska Ieikarann Sandor Zsabo og eiginkonu hans, óperettusöngkonuna Kato Barcsy. Þau hjón voru bæði í hópi flóttafólksins, sem heppnaðist að losna frá ófrelsinu heima fyrir. lífsglaðra fugla lífgar upp þessa auðn. Engir fjallalækir senda frá sér hljómþýða tóna yfir umhverfið, því að þeir eru bundnir klaka- böndum. — Þessi órofakyrrð hefur annar- leg áhrif á allt líf. Það er eins og dauðinn sé hvarvetna nálægur, hljóður og máttugur. Og alda tímans þokast áfram á sinni eilífu rás. Við þraukum Þorrann og Góuna, og dag- arnir lengjast og birtan eykst. Og þar kem- um um síðir, að drottnunarvaldi vetrarins er lokið til fulls. Loksins er veturinn á enda, en blessað vorið heilsar okkur með unaðs- legu brosi, álftakvaki og vorfuglaklið. 8

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.