Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1957, Blaðsíða 37

Heimilisblaðið - 01.01.1957, Blaðsíða 37
Dyrnar opnuðust og fólk sté út, bændur og konur með stórar tágakörfur, borgarar með flókahatta á höfði. Loksins kom hún auga á Rosalie, sem bar eitthvað í fangi sér, er líktist fataböggli. Hún ætlaði að hraða sér til hennar, en hún var hrædd um að detta. Fætur hennar voru ekki sterkir. Þegar Rosalie kom auga á húsmóður sína, gekk hún rólega til henn- ar og sagði: — Góðan daginn aftur, frú. Þá erum við komnar heim. En þér megið trúa, að það mátti ekki tæpara standa. — Jæja, hvers vegna? stamaði Jenný. — Hún dó í nótt, svaraði Rosalie. — Þau voru gift. Hér er sú litla. Og hún rétti fram barnið, sem var hulið í fötum. ösjálfrátt tók Jenný á móti því, um leið °g þær yfirgáfu brautarstöðina og stigu upp í vagninn. — Páll kemur strax og jarðarförin er af- staðin, sagði Rosalie. — Ég hugsa á morgun uni þetta leyti. — Páll . . ., hvíslaði Jenný. Það var allt °g sumt, sem hún gat sagt. Sólin var að síga til viðar. Hún varpaði Ijóma sínum yfir græna akrana, gul blóm sveifgrassins og rauða blómknappa draum- sóleyjarinnar. Undarleg kyrrð hvíldi yfir landinu. Bóndinn, sem ók vagninum, hvatti hestinn úr sporunum. Jenný horfði upp í bláan himininn. Svöl- Urnar flugu í boga yfir höfði hennar. ■A-llt í einu fann hún lifandi veru þrýsta sér upp að brjósti hennar. Það var nýfætt barn, sem lá sofandi í skauti hennar. Það gagntók hana undarleg tilfinning. Hún tók fötin frá andliti barnsins, sem hún kafði ekki ennþá séð. Þetta var andlit sonar- dóttur hennar. Barnið opnaði ofurlítið bláu augun sín og hreyfði varirnar. Þá þrýsti Jenný því upp að sér og kyssti það, hvað eHir annað. Hættið, frú Jenný, barnið fer að gráta, sagði Rosalie dálítið önug, en svipur henn- ar sýndi þó, að hún var glöð og ánægð. Síðan bætti hún við, eins og hún væri að svara hugsunum sjálfrar sín: ~~ Já, sjáið þér til, 1 í f i ð er aldrei eins agurt og aldrei eins erfitt og maður heldur. ENDIR. 35

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.