Heimilisblaðið - 01.07.1961, Side 4
en sögur hófust og varla hefur séð fyrir
endann á enn þann dag í dag. En allt frá
árunum kringum 1000 og til loka 18. aldar
var höfuðóvinurinn Genúa.
Paoli eldri, sem að fornafni hét Giaccinti,
var læknir. Hann tók þátt í að hefja fána
uppreisnarinnar mót Genúa árið 1736, og
lánið var með honum allt þar til Frakkar
brutust til eyjarinnar árið 1739; en eftir
að þeir komu Genúumönnum til hjálpar,
neyddist Giaccinti Paoli til að flýja land.
Hann hélt til Napólí ásamt Pasquale syni
sínum, sem þá var fjórtán ára gamall.
Pasquale Paoli átti viðburðaríka ævi. Ár-
ið 1755 sneri hann til Korsíku að nýju og
varð yfirhershöfðingi Korsíkubúa í nýjum
áfanga frelsisstríðsins gegn Genúubúum.
Hann leysti hlutverk sitt dyggilega af
hendi og hélt í horfinu til ársins 1769, er
Genúa seldi Lúðvík XV. rétt sinn yfir
eynni. Gegn ofurefli Frakklands gat Paoli
ekki staðið, og aftur varð hann að yfir-
gefa föðurlandið. Það gerðist einmitt
sama ár og „litli Korsíkumaðurinn" Napó-
leon fæddist, og þess vegna var hinn vænt-
anlegi keisari Frakka franskfæddur að
forminu til, enda þótt hann í eðli sinu
væri aldrei annað en Korsíkumaður, óstýn-
látur og fyrirferðarmikill rétt eins og
Paoli.
En Pasquale Paoli var ekki af baki dott-
inn á þessu fæðingarári Napóleons. Ai'10
1790, í byltingunni frönsku, kom hann aft-
ur til Korsíku, og þar eð hann var hægfara
lýðveldissinni var hann kjörinn foring1
þjóðvarnarliðsins. En hæglyndi hans í lý®"
veldisstefnunni olli því, að hann komst 1
andstöðu við róttækari arm hreyfingal'
innar, og árið 1793 varð sá afstöðumunu1
áþreifanlegur gegn fransksinnuðum Bonæ
partistum. Þá gerði Paoli tilraun til að fa
vilja sínum framgengt með enskri aðstoð-
Afleiðingin varð stuttur en átakamikd
upplausnartími, þar sem Korsíka viðu1'
kenndi Bretakóng sem veraldlegan drottm
sinn og gerði Englendinginn Eliot að vara'
konungi. En þetta tímabil varaði stutt-
Korsíka komst aftur undir yfirráð Frakka>
en Paoli hélt til Englands, þar sem ha1111
andaðist 82 ára gamall árið 1807.
■
136
Bærinn Corte, þar sem frelsishetjan Paoli hafði bækistöðvar sínar.
HEIMILISBLA®:[I)