Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Síða 6

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Síða 6
hyggjulaust horft fram á við. Ég hef haft tal af hagfræðingi einum, sem á 15 árum hefur kynnt sér kringumstæðurnar í u. þ. b. tíu nýjum ríkjum, og hann sagði við mig: „Þessi eyja hefur næstum allt, sem er þess virði að eiga það, að olíunni einni undantekinni.“ Þarna er víðlendi af frjósamri jörð sem enn er ekki ræktuð, og í iðrum sínum geymir landið auðlegð, sem enn er ekki komin í ljós til fulls: grafit (Madagaskar er næstmesti grafitframleiðandi heims, Ceylon ein þar framar); skjásteinn, sjald- gæfur kristall sem hefur mjög mikla þýð- ingu fyrir elektro-tæknina; fjöldi málma, sem einkum eru hagnýtir við smíði eld- flauga, svo sem berylium, thorium, tantal króm og nikkel; járn og kol. Langmestur hluti þessara auðæfa er enn ónýttur, og segja má, að á eynni sé enginn iðnaður til. Nýlendustjórnin franska hafði engan áhuga á því að gera íbúana efna- hagslega sjálfbjarga, en einnig annað hef- ur komið til, svo að iðnaður hefur ekki blómgazt. Sem dæmi þess má nefna hinn ástríðu- fulla áhuga malagassanna á zebú-uxanum, nautgripategund sem líkist indverskum ux- um, með fituhnúð og risavaxin horn. Á Madagaskar fyrirfinnast fleiri zebú-uxar en manneskjur, eða um átta milljónir, en yfirleitt má segja, að engum komi til hug- ar að slátra þessum dýrum eða hagnýta mjólkina úr kúnum. Samt hafa þau enga trúarlega þýðingu eins og hjá Indverjum — aðeins þykja þau bezta dæmið um jarð- neska auðlegð. Því fleiri zebú-dýr sem malagassi á, þeim mun meiri maður finnst honum hann vera. Ekki þýðir hætishót að segja eins og hver annar vesturlandabúi: „Hvaða þýðingu hafa þessi dýr?“ Þegar ég sjálfur varpaði fram þessari spurningu eitt sinn, leit eigandi nautanna á hringinn á hönd konu minnar og svaraði án þess að láta sér bregða: „Hvaða þýðingu hafa dem- antar konunnar þinnar?“ Forfeðradýrkunin gerir einnig sitt til, að tækniframförin er engin. Engum mala- gassa kemur til hugar að leggja fyrir róða hina fornu búnaðarhætti eða yfirhöfuð reyna nokkuð sem er nýtt og ókunnugt. Hann óttast það nefnilega að vekja reiði forfeðra sinna. Ekki er dauðinn álitinn nein hörmuleg uppákoma, enda eru hinir dauðu sífellt taldir með í fjölskyldunni. Þeir hafa bara horfið til annarrar vistar- veru, þangað sem maður vitjar þeirra ann- að slagið. Á nokkurra ára fresti heldur hver fjölskylda hátíð mikla, býður vinum og kunningjum og heldur af stað til ættar- grafreitsins. Hinir látnu eru grafnir upp, bornir í skrúðgöngu, færðir í ný föt og síðan lagðir í gröf sína á ný. Allt fer þetta fram í mjög æðrulausum og vingjarnleg- um anda, með hljómlist og söng og nógu til að éta og drekka. En á ýmsum sviðum héfur Madagaskar notið góðs af tengslum sínum við Frakk- land. Frakkar komu skólakerfi landsins á legg, svo að 54% barnanna ganga nú í skóla. Þúsundir ungra malagassa fara til Frakklands til framhaldsnáms, og enn er það Frakkland, sem borgar brúsann að langmestu leyti. Á ári hverju flytja mala- gassar út vaí’ning fyrir aðeins þriðjung þess, sem þeir flytja inn, og það eru Frakk- ar sem beinlínis gefa þeim afganginn. Álit- ið er, að Frakkar borgi þriðjung og jafn- vel helming allra opinberra útgjalda hins nýja lýðveldis. Eftir heimsstyrjöldina síðari var Mada- gaskar meðal þeirra mörgu nýlendna sem tóku að krefjast sjálfstæðis. Ekki tóku Frakkar það mjög hátíðlega — fyrr en hina hræðilegu nótt í marz 1947, þegar malagassar réðust samstundis fram á 100 stöðum og myrtu einangraða, franska landnema, embættismenn og hermenn, ein- att á hryllilegan hátt. Ekki er vitað, hversu margir malagass- ar féllu í gagnárás Frakkanna. Árið 1948 taldi franski landstjórinn, að þeir væru „yfir 50.000“, en samkvæmt nánari rann- sókn franskra manna, sem fram fór 1950, var aðeins um að ræða 9.500. (Án þess að geta komið með beinar sannanir, halda ýmsir malagassar því fram, að gagnráð- stafanir Frakkanna hafi kostað allt að 175.000 mannslíf). En þessi blóðuga upp- reisn opnaði allavega augu Frakka. Og þá hófst hið venjulega reiptog milli nýlendu- valdsins og þjóðernishreyfingar hinna inn- 50 HEI M ILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.