Heimilisblaðið - 01.03.1962, Page 14
inn þar niður í einu lagi. — Þetta kom upp
og grösin uxu og leið svo fram í október.
Þá fór hann að athuga uppskeruna og fann
fáeinar kartöflur niðri í moldinni í balan-
um, en þær voru svo smáar, að. engin
þeirra var stærri en piparkorn. Hann hirti
þær samt og geymdi til að reyna hvort unnt
yrði að hafa þær til útsæðis vorið eftir.
Það tókst, enda var ekki annað útsæði að
fá, og næstu tvö sumur (1759—60) heppn-
aðist kartöfluræktin eftir atvikum vel hjá
honum. Stærstu kartöflurnar, sem hann
fékk, voru á stærð við hænuegg, en þær
minnstu á við krækiber og svo þar á milli.
Með þessum ræktunartilraunum þeirra
Hastfers baróns og séra Björns í Sauð-
lauksdal var sýnt, svo að ekki þurfti að ef-
ast um það framar, að hér var hægt að
rækta kartöflur, og síðan hefur það líklega
alltaf verið gert á hverju ári einhvers stað-
ar á landinu. En lengi kvað samt lítið að
þessari ræktun og þess var langt að bíða,
að hún væri almennt stunduð. Þó er nú svo
komið fyrir löngu.
(Þýtt og frumsamiS eftir ýmsum heimildum)
Sigurður Helgason.
Fyrrverandi þýzkur skíða-
hlaupari, Josef Niklas frá
Oberammengau, hefur
fundið upp rafmagnstæki á
skíðastafi, sem gefa frá sér
hljóð. Tilgangurinn er sá
að geta gert áliorfendum
aðvart, þegar skíðamenn-
irnir geysast niður snar-
brattar fjalishlíðarnar. >
< Brúðhjónm, sem liér eru
að skála fyrir framtíðinni,
hafa ekki gcrzt sek um
neins konar glæpi. Þau
vinna bæði hjá lögreglunni
í Lundúnum, og þegar þau
voru gefin saman, fannst
nokkrum giensfullum fé-
iögum ])eirra rétt að sýna
samband ])eirra á þennan
hátt.
Nú er auðveldara fyrir
konur að þvo hár sitt
heima, ]>ví nú fást þurrk-
hjálmar, sem ætlaðir eru
til einkanota. Hér sést slík-
ur plasthjálmur. Hitann
getur hver og einn stillt að
eigin geðþótta. >
< Það er um að gera að allt
sé í stakasta lagi, þegar
foringinn kannar liðið. —
Þessir litlu lífverðir i sín-
um skrautlegu búningum,
vöktu mikla hrifningu á
góðgerðarsýningu, sem
haldin var í Lundúnum
ekki alls fyrir löngu
58
HEIMIfJSBLAÐTÐ