Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Page 21

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Page 21
ar hafa losnað við allt að því 14 lítra (kíló) af slíkum kroppvantslopa á aðeins einni viku! Einhver stórfenglegasta framförin í meðferð hættulegra nýrnasjúkdóma er til- flutningur nýrna — þar sem nýru eru flutt úr einum manni í annan. Undan- farna hálfa öld hafa skurðlæknar gert til- raunir með þessa aðgerð sem hinzta neyð- arúrræði, þegar öll von var úti, en í hvert skipti hefur farið svo, að aðkomunýrað eyðilagðist brátt af eiturefnum, sem mynd- uðust í líkamsvefjum sjúklingsins. Ýmsum vísindamönnum hafði komið til hugar að slíkur tilflutningur kynni samt að vera mögulegur með jákvæðum árangri milli eineggja tvíbura, sem líffræðilega eru svo að segja alveg eins, og í desember 1954 tóku þrír skurðlæknar í Boston sig til og gerðu tilraunina, þeir J. Hartwell Harrison, John P. Merrill og Joseph E. Murray. Inn á Bringhami-sjúkrahúsið í Boston var lagður ungur maður með bæði nýru gjöreyðilögð eftir sjúkdóm. Sam- kvæmt reynslunni fram til þess tíma, var hann dauðadæmdur. En — hann átti ein- eggja tvíburabróður, sem var fús til að gefa honum annað nýra sitt. Skurðlæknar skáru nú annað nýrað úr heilbrigða bróð- urnum og settu það hægrameginn í hinn sjúka. Aðgerðin tókst vel, og sjúklingur- mn náði sér án hinna minnstu eftirkasta. Síðan hafa aðrir skurðlæknar framkvæmt tilflutning nýrna milli eineggja tvíbura og uieð sama góða árangrinum. En að sjálfsögðu eiga fæstir nýrna- sjúklingar eineggja tvíburabróður eða systur, sem getur hjálpað upp á sakirn- ar- Þess vegna reyndu Bostonlæknarnir þi’ír að ganga enn róttækar til verks, fyrir tveim árum. Það sem eyðileggur nýrnavef- mn eru einmitt varnarefni hans — anti- efnin — þó ótrúlegt kunni að virðast. Var e-t-v. hugsanlegt að framkvæma nýrnatil- flutning, ef líkaminn var „afvopnaður“ til skamms tíma? Fullreynt var, að hægt Var að hefta slíka efnamyndun líkamans með því að beina röntgengeislum. Væri fkurðaðgerð framkvæmd á meðan líkam- lnn væri í slíku varnarleysisástandi, var þá ekki hugsanlegt, að hann gæti vanizt „aðkomuvefjunum“ og tekið þá sem sína eigin, á meðan hann væri smám saman að jafna sig eftir skort varnarefnanna? Fyrri hendi var sjúklingur, sem tilval- inn var til slíkrar tilraunar, því hann átti sér enga aðra lífsvon. Þetta var ungur maður, hafði áður fyrr verið manna hraustastur og stæltastur, en vóg nú að- eins 4414 kíló, því að nýru hans voru næst- um hætt starfi sínu með öllu. Tvisvar var hann látinn gangast undir næstum ban- væna röntgengeislun, og síðan var pant- að í hann nýra úr tvíburabróður hans (en þeir voru tví-eggja tvíburar, og slíkir menn geta verið líkamsfræðilega jafn ólíkir og hverjir aðrir óskyldir menn). Eftir aðgerðina var sjúklingurinn lengi að ná sér, og nú, hálfu öðru ári síðar, er hann fyrsti maðurinn sem hefur lifað svo lengi eftir slíka aðgerð, og er að því er virðist við beztu heilsu. Síðan hafa verið framkvæmdar sams konar aðgerðir og með jafn gleðilegum árangri. Nú er takmarkið að finna upp að- ferð, sem sé áhættuminni en röntgengeisl- un, til að hefta antiefnaframleiðslu lík- amans. Fyrst og fremst er leitað einhvers sérstaks efnis þar til, og svo virðist sem sú leið sé möguleg. Tveir bandarískir vísinda- menn hafa t. d. gert tilraunir með efni, sem þeir vonast til að geti heft vöxt krabbafruma, og þeir hafa komizt að því, að það heftir einnig myndun varnarefna líkamans. Efni þetta er of eitrað til að vera nothæft í lyf, en með tilraunum á dýrum hefur komið í ljós, að hægt er að fram- kvæma nýrnatilflutning með góðum ár- angri með því að beita efni þessu áður, og varla er það vafamál, að smám saman verður hægt að þróa tilraunina þannig, að fyrir liggi jafn árangursrík blanda, en miklu síður skaðleg mönnum. Sem betur fer munu fæstir nokkru sinni kenna nýrnasjúkdóms. En færi svo, að „efnafræðingar" líkamans tækju að van- rækja störf sín, er það mikil raunabót að vita, að læknarnir hafa nú yfir að ráða ýmsum aðgerðum og meðulum til að fá nýru til að starfa aftur. Heimilisblaðið 65

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.