Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Side 25

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Side 25
því sérstaklega, að bróðir minn er einn í þeirra hópi. Innan þriggja vikna munu fjórar freigátur reiðubúnar til brottfarar. Allt virðist í bezta lagi, og það er einungis hinn djarfi Rinaldo, sem er hikandi. Rósa er í Fronteja. Á ég að skrifa, að þú viljir fá hana hingað?“ „Viltu gera það?“ „Ég skal gera það. Ef til vill hefur ná- vist hennar meiri þýðingu fyrir þig en ég. Slíkt gæti verið ávinningur fyrir okkur öll. Ef þú lifnaðir við, þá mundir þú að nýju öðlast anda framtaksseminnar. Já, ná- vist Rósu mun vekja hann. Hún verður hér hjá þér, en ég fer til Fronteja." „Af hverju?“ „Þú býst þó ekki við því, að ég sé hér kyrr, eftir að Rósa er komin? Nei, Rin- aldo, svo tilfinningarlaus er ég ekki, að ég geti þolað návist slíks keppinautar án afbrýðissemi. Með því að fara burt held ég vináttunni við þig, og ég ætla að reyna að sigrast á ást minni til þín.“ Rinaldo þagði. Olimpia kveikti ljós, bauð honum góða nótt og fór út. — Rinaldo gekk fram og til baka fyrir utan húsið, fór aftur inn óg ráfaði um í draumleiðslu fram yfir miðnætti. Skyndilega tók hann ljósið og flýtti sér inn í herbergi Olimpiu. Hann fór hljóðlega og sá hana í örmum læri- sveinsins frá Fronteja. Hann hvarf jafn- hljóðlega út og hann hafði komið inn ... Nýr dagur rann upp. Elskendurnir voru ekki sérlega upplitsdjarfir. Rinaldo fór í yfirhöfnina, sagði lágum rómi: „Lifið heil“, og hvarf á braut. Um hádegi kom hann til þorps eins, hvíldist þar litla hríð, en hélt svo ferð- inni áfram. Um sólarlag húmaði að, en þá hraðaði hann sér, svo að hann kæmist til hallar einnar þar í nándinni. Hann knúði þar að dyrum og var hleypt inn. „Hver eruð þér?“ spurði dyravörðurinn. „Tegnano barón. Ég villtist, þegar ég var í veiðiferð,“ svaraði Rinaldo. Dyravörðurinn horfði þegjandi á hann °g var eins og í óvissu hvað hann ætti að gera. Rinaldo spurði: „Hver á þessa höll ?“ „Martagno greifafrú.“ „Martagno greifafrú?" greip Rinaldo fram í fyrir honum. „Er hún hér?“ „Nei, hún er ekki hér,“ svaraði ayra- vörðurinn rólega. „Hver býr í höllinni?“ „Vinkona greifafrúarinnar. Hún heitir Madonna Violanta." „Madonna Violanta? Við þekkjumst.“ Hann ýtti dyraverðinum til hliðar og skundaði inn í höllina. Þegar hann hafði farið upp stiga, rakst hann á stúlku, sem sagðist skyldi segja fyrirfólki hússins frá komu Tegnano baróns. Honum virtist þetta taka allt of langan tíma hjá stúlkunni. Hann gekk inn í lítið forherbergi meðan hann beið. Vegna umgangs, sem fylgdi komu hans, voru dyr einar opnaðar, og Signora Vio- lanta kom fram. „Hamingjan góða! Eruð þetta þér, Teg- nano barón ? Hvernig eruð þér hingað kom- inn?“ „Ég er að leita að náttstað." Violanta virti hann þögul fyrir sér og gekk svo aftur inn í herbergið. Hann fylgdi á eftir henni. Hún settist á sófa og sagði hikandi: „Leyfið mér að átta mig.“ Hann leit í kringum sig í herberginu og sá mynd greifafrúarinnar hanga þar uppi á vegg. „Er Dianora hér?“ kallaði hann upp yfir sig. „Æ, það er aðeins mynd af henni.“ Hann tók í skyndi myndina af veggnum og kyssti hana. — Violanta horfði þegj- andi á hann. Hann gleymdi nærveru Vio- löntu af hrifningu yfir að sjá þetta heitt- elskaða andlit aftur. Eftir langa þögn gekk hann til hennar, greip hönd hennar og spurði: „Hvar er Dianora? Hvar á hún heima?“ Violanta andvarpaði og þagði. Hann spurði ákveðinni röddu: „Hvar er Dia- nora?“ Violanta stundi þungan og leit niður. „Er hún dáin?“ spurði hann. „Hún er enn á lífi.“ • „Er hún lifandi og hamingjusöm?" „Æ, hvernig getið þér spurt þannig, barón?“ „Ég skil yður. Óhamingja mín hefur líka heimilisb LAÐIÐ 69

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.