Heimilisblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 34
Við, sem vinnum
Þegar kakan er orðin köld er hún skor-
in í tvö lög. Á neðra lagið er fyrst smurt
4 msk. af appelsínumarmelaði og síðan
helmingnum af kreminu. Kakan er lögð
saman og ofan á er smurt afganginum af
kreminu.
Kakan er skreytt með rifnu súkkulaði.
Flestar húsmæður hafa gaman af að
reyna nýjar uppskriftir. Hér eru nokkrar
mjög góðar:
Sírópskaka
250 gr síróp
50 gr dökkur púður-
sykur
50 gr smjörlíki
2 stk. egg
1 pk. vanillusykur
1 isk. möndluessens
2 tsk. sléttfullar
kanill
1 tsk. sléttfull
negull
250 gr. hveiti
4% tsk. ger
Ca. 2 msk. mjólk.
Ofuriítið salt
Síróp, púðursykur og smjörlíki er brætt
og kælt. Smátt og smátt er eggjum, van-
illusykrinum, essensinum, saltinu og
kryddinu hrært út í. Hveiti og ger er síað
saman, er látið út í og síðan er mjólkinni
hrært saman við. Deigið er síðan látið í
kringlótt tertuform og bakað í ca. 45 mín.
við heldur háan hita.
Sörukaka
Smjörkrem er búið til úr:
1 pk. af vanillu- 3% dl mjólk
kremdufti 150 gr smjör.
75 gr sykur
Kremduftið og sykurinn hrærist út í 4
msk. af kaldri mjólk. Suða er látin koma
upp á afganginum af mjólkinni, hún tek-
inn af plötunni og vanilluhrærunni jafnað
út í, og suðan síðan látin koma upp og
stöðugt hrært í á meðan. Látið kólna og
hrært í annað slagið svo ekki myndist
himna ofan á.
Smjörlíkið er hnoðað og síðan hrærist
kremið smám saman út í. (Gætið þess að
smjörlíki og krem sé ekki of kalt þegar
það er hrært saman.)
150 gr smjörlíki
125 gr sykur
1 pk. vanillusykur
2 stk. egg
1 tsk. sítrónuessens
Ofuriítið salt
200 gr hveiti
50 gr mais- eða liris-
mjöl
414 tsk. mjólk
Ca. 4 msk. mjólk.
Smjörlíki og sykur hrærist saman, van-
illusykur, egg, essens og salt er látið út í,
og síðast hveiti, ger og mais (sem er bland-
að saman áður) látið út í ásamt mjólkinni.
Kakan er bökuð í 70 mín.
Krem: 150 gr flórsykur
20 gr (2 msk.) kakó
Ca. 3 msk. heitt vatn.
Flórsykur og kakó er síað saman og
heita vatninu hrært út í. Þegar kakan er
orðin köld er kreminu hellt yfir og jafnað
yfir hana alla.
78
HEIMILISBLAÐIÐ