Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1962, Page 35

Heimilisblaðið - 01.03.1962, Page 35
Hversdagskaka 250 gr smjörlíki 2 sléttar tsk. karde- 200 gr sykur momraur 1 pk. vanillusykur 750 gr hveiti 3 tsk. egg 4 tsk. ger Ofurlítið salt Ca. 3 dl mjólk. Smjörlíki og sykur hrærist saman, van- illusykur, egg, salt og kardemommur er látið út í, og síðast hveiti, ger og mjólk. Skúffan úr bakarofninum er smurð og helmingurinn af deiginu er látinn í hana og 150 gr af dökkum púðursykri stráð of- an á og afgangurinn af deiginu er látinn yfir. Deigið er penslað með mjólk og gróf- um sykri stráð yfir. Norsk eplakaka 300 gr hveiti Ofurlítið salt 3 tsk. ger 100 gr sykur 1 pk. vanillusykur Ofurlítið salt 1 stk. egg 1 msk. mjólk eða vatn 150 gr smjörliki Hveiti og ger blandast saman og síað. I miðju hveitisins er búin til hola og þar í er látið: sykur, vanillusykur, salt, egg og rnjólk (eða vatn). Þá er smjörlíkið skorið i smáa bita og hnoðað saman við. Ef deig- ið vill klessast saman, er það látið á kaldan stað. Rúmlega helmingurinn af deiginu er flattur út á botninn af tertuformi. Pikkað með gaffli áður en það er bakað. Ofninn er hitaður í 10 mín. áður en kakan er sett inn og síðan bökuð í ca. 20 mín. Á meðan er búið til eplamauk úr: Ca. 1 kg epli 75 gr sykur 1 msk. vatn 2 msk. rúsínur % flaska romm-essens. Eplin eru afhýdd, kjarninn tekinn, og Pau skorin í smábita, soðin lin með sykri, yatni og þvegnum rúsínum. Romm-essens- lnn er fyrst látinn út í, þegar maukið er orðið kalt. Hinn hlutinn af deiginu er flattur út á °rðinu og skorinn eftir forminu. Úr af- Sanginum af deiginu er búin til lengja, sem or látin ofan á bakaða botninn, meðfram hðum formsins, þannig að hún er ca. 3 sm a hseð. Þá er maukið látið út á, deigið lagt yrh’, penslað með mjólk og pikkað með gaffli. Bakað í ca. 30 mín. Einfalt lyf gegn óhreinni húð Flestir vita það, að útlit húðarinnar fer mikið eftir ástandi magans. Það er mjög gott að borða mikið af grænmeti, ávöxtum og mjólk, en rauðrófur eru langbeztar í þessum tilgangi. Hráar, rifnar rauðrófur, ein skeið nokkrum sinnum á dag í hálfan mánuð — hafa reynst vera mjög gott lyf gegn slæmri húð, rauðrófusafinn er nefni- lega blóðaukandi. Þetta einfalda meðal var notað þegar fyrir 100 árum, og þar sem það bæði er einfalt og tiltölulega ódýrt, er ekki nema sjálfsagt að taka það í notkun aftur. Það er einnig mjög gott að borða einn dag í viku eingöngu ávexti, þurrt brauð og mjólk, einkum ef rauðrófur eða annað blóðhreinsandi meðal er tekið með. 1 Frakklandi er slíkur vikulegur hreinsun- ardagur mjög algengur. Nátttreyjur úr kjólum Hvað er hægt að gera við gamla kjóla úr ljósum, þunnum efnum, sem við erum hættar að geta gengið í? Það er til dæmis hægt að búa til úr þeim fallegar nátttreyjur, sem okkur finnst flestum gott að eiga. Það er ekki erfitt að sauma þannig flíkur. Og ef ekki næst nægilegt efni úr einum kjól, má vel nota fleiri, aðeins að litirnir fari vel saman. HEIMILISBLAÐIÐ 79

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.