Heimilisblaðið - 01.03.1979, Page 36
Dag nokkurn, þegar Kalli og Palli eru í gönguferð,
finna þeir veika slöngu, sem ekki getur hreyft sig.
En hún er of þung fyrir þá aö bera, en samt verður
að koma henni til Marabús læknis. Hvað skal gera?
En eins og þið sjáið finna þeir ráð til að koma herini
cil læknisins. En erfitt var það. Og ef ykkur langai'
að vita það, þá læknaði Marabú hina sjúku slöngu,
svo að nú er hún frísk og hress aftur.
„Heyrið, langleggir," segir Kalli við storkana. ,,Þið
vitið að við Palli kunnum ósköpin öll, en við kunnum
bara ekki að fljúga. Viljið þið nú ekki lofa okkur að
vera með í einni flugferð ykkar?" Jú, storkarnir sam-
þykktu það og sögðu þeim að grípa um löngu rauðu
fótleggina sína, þegar þeir hæfu sig á loft næst. Það
var gaman að svífa svona um loftin blá og virða
jörðina fyrir sér. Petta urðu hin dýrin líka að fá
reyna, svo það urðu miklir flutningar í loftinu. En
Maren flóðhestur og Jambó gátu ekki tekið þátt '
þessu, því storkarnir gátu ekki borið þá á fluginu.