Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1918, Page 47
^á^c)1S^Aíc) S^á^c) ^A^c) G\áíc) S^Aíc) (5\A£ð <S^áíS 6^áíð S iáfö S^Afc) S^A£c) S^Aíc) S^Aíc)
lllllllf lllf lllf
Mummmmv,
Ef eg ætti að prédika fyrir
banding-junum i varðhaldi,
og mætti segja það sem mér býr í brjósti.
Eftir P. 0. Berglund.
Bræður mínir!
Verið ekki áhyggjufullir eða sorgbitnir, heldur glaðir!
Verið glaðir af því að yður gefst kostur á að læra!
Dómarinn hefur dæmt yður!
Eg spyr ekki að því, hvort hann haíi kveðið upp réttan
eða rangan dóm yfir yður, hvort þér séuð sekir eða
saldausir.
það er komið sem komið er. Þér eruð nú einu sinni
hérna í dýflissunni, en þér eigið sjálfir að dæma yður. Þér
heyrið rödd eða raddir tala i yðar eigin lnjósli. Þær eru
að sönnu ólikar og hjáróma, en ef þér athugið þær gaum-
gæfilega, þá verðið þér ekki lengi í vafa um hver þeirra
það er, sem talar sannleikann.
Sannleikans rödd býr i yður öllum. Og rödd sannleikans
cr rödd Guðs. Sannleikurinn er Guð sjálfur. Guð sjálfur
býr bið innra í yður. Hann er insti og æðsti kjarninn í eðli
yðar, bin sanna sjálfsmeðvitund. Þér og Guð eruð bæði inst
og yzt eitt og hið sama.
45