Heimir - 01.05.1905, Page 21
HEIMIR
117
í Montreal var skift um vagna til Boston. Þar varö 2 tfma
biö, nægiiega löng fyrir hvern, sem vildi, til þess aö ganga upp
aö „Skírgetnaöar" kyrkjunni (Immaculate conseption), eöa hvaö
hún heitir, sem kaþólskir menn hafa reist þar skammt frá vagn-
stööinni. Þangað gekk fjöldi manns, meöan biöin varö, og sem
sannur íslendingur fylgdi eg eftir fjöldanum. Eg sá þar Pétur
og Pál og Maríu og Gabríel og annað fornaldar fólk, en stutt
varö um samræðurnar. Þau eru ölí búin að missa máliö fyrir
löngu, og sjaldgæft orðið, að þau hreyfi hönd eöa höfuð fyrir
þráfaldan bænastaö hinna trúuðustu í kyrkjunnú Öllu hnignar,
en öllu er haldið við í trúnni, jafnvel þótt þaö kosti sál og sann-
færingu.—
Það var eitt sinn maöur á ferö. Er hann fór aö heiman,
þurfti hann yfir fijót, sem varð á vegi hans. Og er hann kom
ofan í bátinn, snéri hann hnakka og hæli aö stafni, og réri aftur
á bak, unc hann bar að landi. Við ferjustaðinn fékk hann sér
hest til næsta kauptúns, og er hann steig á bak, fór hann öfug-
ur í söðlinum, svo að bak vissi fram, en ásýnd aftur. Þannig
ferðaöist hann þaö sem eftir var vegarins, þótt á þurt land væri
komiö, af því þannig var ferðin hafin í byrjun.—
Á laugardagsmorguninn vaknaði eg upp við góð tíðindi,—
lestin var komin til Boston. Fyrsti maðurinn þar, sem eg bar
kennsl á, eftir aö eg var kominn á strætisvagninn, var Leifur
Eiríksson. Hann stendur enn viö vegamótin á Commonwealth
Ave., skyggir hönd fyrir augu og horfir mót Iandsuðri. Hann er
nú steindrangur eins og hinir, en þó held eg hann tali skiljan-
legri oröum og með meira lífi til allra vor, en Pétur austræni úr
Galíleu. Næstan manna hitti eg Vilhjálm Stefánsson, og svo
nokkra gamla skólabræður, og svo mann af manni. Það var í
V Cambridge. En nú voru tvö ár liðin, frá því eg var þar síðast,
og margt orðið breytt. Margt breytst á annan hátt en vér ætl-
uöum. Vér tökum hljóðir sumum þessum breytingum og semj-
um oss að þeim,er stundir líða fram,á aðrar sættumst vér aldrei.
En þá er aö minnast Unitaraþingsins með nokkrum oröum.
Eins og venja er til er þing þetta haldið í Boston Mass. 4.
viku maímánaðar ár hvert. Þingið var sett 22. og því slitiö 27.