Heimir - 01.11.1905, Síða 20
208
I-I E I M I R
kosinn til aö gjóra um deilmnál iúterskra þjóöa. Hann var nú
orðinn hinn nrikli stjórnmálamaður, og bráöum átti hann meira
að veröa.
Heppni hans hafði kennt honum eitt, að það var hægt að
endurreisa hið veraldlega vald páfadæmisins, án þess að vinna
aftur kyrkjuríkið. Hann sá nú að smáríki var að eins hlekkur
um fætur hins kyrkjulega valds, og frá þeirri stund hætti hann t
alveg að berjast fyrir eignarrétti kyrkjunnar á tilteknu land-
svæði, sem áöur hafði verið aðaláhugamál kaþólskra manna.
Þegar hann minnist á kyrkjuríkið opinberlega, gjörir hann það f
með svo hægum orðum, að helzt lítur út, að hann sé að geöjast
hinum gömlu deyjandi kröftum í kaþólsku kyrkjunni. Hann
hefir einbeittlega barist á móti því, að kaþólska kyrkjan beitti
Italíustjórn brögðum í tillögum við erlend ríki. Og það er eitt
sem efit hefir vald páfaveldisins.
Nútíminn einkennir sig frá liðna tímanum í því, að koma.
hugsjónunum í fast form. Kyrkjan sem siðferðislegt afl er nú
miklu aflmeiri, enda frá veraidlegu sjónarmiði, heldur en sú
kyrkja, sem byggir á því, að ráða ríki. Ætli fáeinar ferhyrn-
ingsmílur gætu aukið eða minkað veldi Leos XIII.? Mundi
landstjórn nokkurra presta geta staðist á þessum tíma? Mundi
fáeinar þúsundir hermanna í nokkru auka vald hins kaþólska
kyrkjuhöfðingja? Leo XIII. sá það, aö nýr tími heimtar nýja
tilhögun.
Veturinn 1887 komu til Rómaborgar tveir kaþólskir menn
frá Ameríku, Gibbons kardináli og Ireland erkibyskup. Þeir
voru báðir mestu framkvæmdarmenn, skarpvitrir og höfðu fjöl-
hæfa mentun. Þeir voru mjög mikils metnir í Ameríku, og áhrif
þeirra náðu langt út yfir takmörk kyrkjunnar kaþólsku. Þeir
komu til að tala máli verkamannafélags, sem nefndi sig „Varn-
arlið vinnulýðsins". Byskuparnir höfðu bannað kaþólskum
mönnum að vera í félagi þessu. En Gibbons og Ireland og
ýmsir mikils metnir kyrkjumenn sáu, að þannig löguð pólitík yi
átti eigi við í Ameríku. Þeir komu því til að skýra þetta mál
fyrir páfanum. Þeir voru báðir hreinir og einlægir páfatrúar-
menn. En þeir voru líka báðir Bandaríkjamenn í húð og hár.