Heimir - 01.11.1905, Blaðsíða 24
272
H E I M I R
um, byskupum og leikmönnum frá öllum heimsálfum. Stundurn
er þeim hlej'pt inn í herbergiö meö gulu silkitjöldunum.þar sem
Leo situr í gyltum stóli meö skrauttjaldi yftr. Hann fer þá þeg-
ar að leita frétta hjá komumanni. Þaö er ekki um kyrkjumál,
aö samræöan snýst. Hann spyr komumann venjulega um lífs-
skilyröin og hag lýösins, þar sem komumaöur á hcima. Spyr
um alt. Hvernig eru lífernishættir þar? Hjá alþýöunni? Hjá
heldra fólkinu? Hverir eru nú leiöandi menn ykkar? Hvernig
menn eru þaö? Þekkiö þér þá persónulega? o. s. frv. Hann
vill læra aö þekkja alt,— heyra því lýst af munni trúverðugra
sjónarvotta. Hiö skarpa augnaráö hans eins og rótar öllu um í
brjóstum þeirrra. Þegar hann hefir fengiö allar upplýsingar,
og er búinn aö gjöra sér ástæöurnar ljósar, þá ræöur hann ýms
ráö, og endar oft á þessum orðum: „Viö veröum aö vinna lýö-
inn, vinna hjarta lýffsins. Viö veröum aö komast í samband viö
alla góöa menn, hvers kyns sem þeir eru, og hvað sem skoðun-
um þeirra líöur. Látum eigi hugfallast. Viö vinnum sigur á
endanutn, sigur yfir fordómum, ranglæti og villudómi."
Gömlu kardinálarnir og aðrir páfatrúar höföingjar hafa mátt
horfa á þaö hneyksli og vanhelgun, aö hinn heilagi faöir hefir
leyft aö leita frétta hjá sér, og útskýrt stjórnarstefnu sína og
fyrirætlanir fyrir fréttariturum heimsblaðanna.
Páfinn reynir á allar lundir aö nálgast lýöinn. Hann vill
ná tali af öllum verkamönnum, vantrúarmönnum; hann vill
skilja alla og alt —skilja nútímann. Verkamanna sendinefndir
fá jafn heiöarlegar viötökur hjá honum, eins og kyrkjunnar
menn.
Hver, sem við Leo ræöir, verður þess ljóslega var, aö hér
er sjaldgæfur maöur viö aö fást,—fjölhæfur, hreinn og víösýnn
andi, meö hlýjum hug, en óbeygjandi vilja. Hann mer undir
fótum sér allar hindranir, og brosir á meöan góölátlega. Hann
lætur aldrei bugast, en fer hægt aö öllu. Hann er einlæglega
frjálslyndur, sannmentaöur og sterkur trúmaöur, en virðir þó
annara trú. Hann er óvenjulega hlýlyndur, og er laus viö alla
beiskju til mótstööumanna sinna, og ástríkur og tryggur vinur
vina sinna.