Heimir - 01.11.1905, Side 25
H E I M I R
273
Hver, sem viö hann ræðir, gleyrnir aldrei þessari veikbygðu
rnynd í stólnum. Þegar ferðamaðurinn er búinn að ljúka til
hálfs upp hurðinni, þá réttir Leo fram hendina og sýnist gjöra
það af öllum líkams kröftum, og segir þá jafnaðarlega: „Vertu
hugrakkur! Starfaðu! Komdu til mfn aftur." Þetta er ekki
sagt í sorgarróm, ekki með tilfinning fyrir því, aö hann sé nú á
þeim aldri, að varla þurfi að búast við endurfundum. Það má
heyra að öldunginn langar ekki að deyja, — vill lifa meðan hann
getur barist fyrir málefni sínu. Hann beitir viljakrafti sínum
enda gegn dauðanum.
En dauðinn sigrar þó að lokum. Og hvað mun þá ske?
Ætli afturhaldið nái þá völdum og eyðileggi starf Leos? — Það
er naumast hætta á því (segir höf.). Leo hefir komið kyrkjunni
í stöðuga stefnu, sem vart breytist. Hin kaþólska kyrkja mun
endurfæðast og verða lýðveldiskyrkja. Það er árangur af verki
Leos XIII. Hann er nýr Columbus, sein kveikti á lampa land-
leitans í skipi Péturs, og stýrði hiklaust í áttina til nýja heims-
ins, og þar fann hann það afi, er endurnýjaði kristindóminn, og
gjörði hann á ný að þungamiðju hins andlega lífs þjóðanna.
EÐ þessu blaði er þá lokið öðrum árgangi Heimis. Það
1 -l hefir tekið nokkuð ineira en ár að gefa út þessar 18 arkir
eins og lofað var, en ástæðurnar fyrir drætti þeitn á útkomu
blaðsins síðastliðið suinar hafa þegar verið margskýrðar, og er
því þarfiaust að endurtaka það á ný. Þótt tekið hafi meira en
ár að gefa út árganginn, þá k'emur það ekki niður á kaupendum
að neinu leyti, nema hvað það reynir á langlundargeð þeirra að
bíða eftir útkomu hvers númers „frá þvf á dögum Nóa." Þriðji
árgangur byrjar með næsta blaði, er kemur í næsta mánuði, og
eru þeir skuldlausir nú, er borgað hafa til útgefenda $ 1.50 fyrir
það sem út er komið frá upphafi, en þeir, sem meira hafa borg-
að, eiga það upp í næsta árgang.— Vér þökkum öllum, er trygð
hafa haldið við Heiini á liðnu ári, þrátt fyrir erviðleika og óskil,
og heitum að gjöra vort ítrasta til, að hann komi út reglulega
framvegis. Enda eru skilyrði til efnda því loforði meiri en áður.
Alt það, sem út er komið, fæst nú innheft í 3 bókum á mjög
sanngjörnu verði og verður auglýst síðar. (Útgáfuncfndin.)