Heimir - 01.11.1905, Síða 28
2 76
H E I M I R
eins og laufin á haustin um hélaöan lund
er þaö hjaönaö, þá fýkur í skjól.
Og þess aldini? Guö minn, hve aumleg og smá,
og sem ekkert hjá heims þessa neyð —
eins og blálindar tár hjá þeim sóllausa sjá,
er þau sogar í helstr/ö og deyö!
Hvað er stórt? hvaö er smátt?- Eins og hjarta mitt slær,
eins og hittist á skap mitt og sál.
En ei helming neinn Absalon afrekaö fær,
þess er ætlaði; hitt veröur tál!—
Og „samt gengur jöröin". Því ég hef þá trú,
að það jafnist vort stormóöa haf,
og aö sjón vor sé rétt og til sannleikans brú —
þessi sjón, er oss eilífðin gaf.—
En með Dauðann í brott! Eg vil lifa mitt líf,
og sjá ljós, þó aö ógni mér Hel;
og eg hleyp út í Iífiö og heltjaldið ríf,
til að hvlla þig, eilífa hvel! —
Sof þú rótt, sof þú rótt. Ó þú döglinga drótt!
Ekki dæmi eg verk þín á storö.
Góða nótt! Höfum hljótt: öll vor gjörningagnótt
veröur grafsteinn meö hálfkveöiö orð! —
Kom þú ljúfasta ljós! Kom þú roðnandi rós,
kom og réttu mér töfranda munn.—
Þaö er nóg: eg á frið, eg á alsherjar griö,
hér við allífsins skínanda brunn!
HEIMIR er í'etiuu út af nokkruin ísloniliiiBUm í Ameriku; kemur út 12 simium á ári og
kostar $ 1 árg. — Út.seDdingu og innheimtu annnst BjOrn Fétursson, 704 Slmcoe Street.
Ritstjóri sírsi Ró^nviildur Pétursson, WinnipeK*
Prentari: Gísli Jóusson, Winnipeg Man.