Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 3
IDUNN
„ísland fullvalda ríki“.
í ritlingi mínum Eftirmála, sem kom út í byrjun síð-
astliðins vetrar, ráðgerði ég (á bls. 87—88) að gera við
taakifæri nokkru fyllri grein fyrir áliti mínu á niðurstöðu
þeirri um sambandsmál Islendinga og Dana, sem felst í
sambandslögunum frá 30. nóv. 1918, en gerð hafði verið
1 riti mínu Nýja Sáttmála. Það sem þar stendur skrifað
um málið (á bls. 133—149) hefir orðið fyrir misskiln-
ingi, bæði viljandi misskilningi, sem vitanlega er ólækn-
andi, og misskilningi af hálfu manna, sem ekki verða
vændir slíks, en búast hefði mátt við að hefðu ljósari
skilning á umtalsefninu en nú er komið á daginn. Það
er vegna þeirra manna og annara, sem ætla má að taki
röksemdum eða kæri sig um þær, að ég fer enn á stað
nieð nokkrar athugasemdir um þetta mál. En af því að
niér er afskammtað rúm, verð ég aftur að fara nokkuð
íljótar yfir sögu en þurft hefði að vera.
Að ég fór nokkurntíma að hreyfa sambandsmálinu,
kom ekki til af því að mér væri ekki ljóst að það, sem
ég ætlaði um það að segja, væri miður vel fallið til að
afla riti mínu vinsælda, því að ég gekk ekki að því
Sruflandi, að ef á annað borð yrði minnzt á ritið nokk-
Ursstaðar opinberlega, þá myndi skoðun mín á sam-
bandsmálinu verða notuð til að spilla fyrir því og til
þess að leiða athygli manna frá sakargiftum þeim, sem
ég beindi að stjórnum, þingi og einstökum mönnum. En
fyrir því gerði ég málið að sérstöku umtalsefni, að sá,
sem tekur sér fyrir hendur að segja stjórnmálasögu
landsins síðan það fór að eiga með sig sjálft eða sér-
Iðunn XI. 7