Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Síða 9
IDUNN
ísland fullvalda ríki
99
fyrirhafnarlaust. íslenzkt herveldi fékk þá ekki og hefir
aldrei fengið að sýna sig til þess að verja sjálfstæði
landsins gegn öðrum ríkjum (annað mál er það, að
meðan íslendingar áttu vopn og verjur, kom það fyrir
að þeir hrundu af sér erlendum óaldarflokkum). Mögu-
íeikinn á að bjóða öðrum veldum byrgin með herafla
er fyrir löngu horfinn og kemur ekki aftur. Og það er
rétt að gera sér það ljóst, að um þetta verður engum
kennt, hvorki landsmönnum sjálfum né þjóðhöfðingjum
þeim eða þjóðum, sem þeir hafa lotið eða verið í sam-
bandi við. Enda þótt landinu hefði verið stjórnað svo
sem bezt mátti verða gegnum aldirnar og þó að land
og þjóð hefðu tekið öllum þeim framförum, sem hvort-
tveggja var móttækilegt fyrir, þá hefði sá tími komið og
komið fljótt, að Islendingar hefðu orðið að leggja árar
í bát i herbúnaðarframsókninni. Útsjónin til þess að fá
viðhaldið nýtilegri sjálfsvörn hvarf til fulls þegar stór-
skotatækin komu til sögunnar. Þjóðin er of fámenn og
fátæk og landið of víðáttumikið og torvarið til þess að
nokkrum komi til hugar að hér verði komið á fót her-
vörnum með því sniði sem nú orðið tíðkast, svo að
nokkurt lið verði að.
En þó að þannig sé löngu horfin önnur meginstoðin
undir sjálfstæði landsins, þá tala menn nú almennt svo
sem ekkert hefði í skorizt og sem standi þjóðin fyrir
því jafn rétt eftir sem áður og jafnt við því búin, sem
hefði hún einskis í misst, að ganga inn í stöðu sem
hún stóð í fyrir sjö öldum. Menn athuga ekki, að hve
miklum Danadýrköndum þeir gera sig með þessu, þótt
■ekki sé það tilgangurinn. Til jafns við eigin rammleik
hins forna íslenzka lýðveldis leggja þeir eitt orð af
munni Dana. Danir láta það eftir nokkrum íslendingum
að segja: Sjá, nú skal ísland heita fullvalda ríki. Þeiv