Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Side 10

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Side 10
100 ísland fullvalda ríki". IÐUNN láta engan skapaðan hlut fylgja nafngiftinni né geta látið fylgja, sem myndi gera hana að meiru en nafninu einu. Og allt um það endurómar þetta orð þeirra frá íslenzkum vörum í þessari mynd: Sjá, nú er Island full- valda ríki. Þó að framfarir þær, sem hér hafa orðið á síðastliðinni hálfri öld, stingi mjög í stúf við margra undanfarinna alda kyrrstöðu og athafnaleysi, þá er þó enginn galdur að skilja, hvernig í þeim liggur, og þó að sumir menn vilji líkja þeim við æfintýri, þá er þó víst, að þær hafa ekki gert sig sjálfar. En hinu svipar til sagnanna í »Þúsund og einni nótt«, að því skuli nú vera trúað, að Danir geti með einu orði gert að sjálf- stæðu ríki land, sem ekkert skilyrði hefir til þess að vera það, eftir því sem almennt er kennt og álitið. Því að sjálfir geta Islendingar ekki hjálpað nafninu um eitt sannleikskorn. Það verður engu sannara fyrir það, þó að þeir greiði nú 60 þús. kr. árlega í beinan nafnbótar- skatt og í óbeinan vaxandi fúlgur. Öllu því, sem ætti að gera ríkisheitið meira en heiti eitt, hafa þeir glatað. Sjálfsvarnargetuna gegn tilbekkingum útlends valds hafa þeir misst fyrir mörgum öldum og geta ekki eignazt aftur, svo sem sýnt hefur verið fram á. Og hér á ofan bætist, að það, sem öðru fremur veitti lýðveldinu forna á blómaöld þess styrk og festu inn á við og út á við, er fyrir löngu farið forgörðum, svo sem enn mun sýnt verða, og engar horfur á að hér geti skapazt neitt, er bætt fái það upp, enda engin viðleitni á því höfð. Og hvern skyldi undra, þó að viðleitni á því bresti, þegar þjóðfélagið sýnir algert viljaleysi og viðburðaleysi á að verka af sér gamla og grómtekna svívirðingu, sem lengi hefur verið alkunn, en þó aldrei eins berlega og nú, er hún er lögð fram fyrir allra sjónir með eigin játn- ingu þeirra, sem mesta sök eiga á henni.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.