Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Blaðsíða 13
■JÐUNN
ísland fullvalda ríki“.
103
svo vera, að þegið hefði verið að landið fengi að heita
ríki, þótt ekki geti það verið það nema að nafninu til.
Látum svo vera, að ríkisheitinu hefði verið látin fylgja
nánari táknun til að sýna að enginn væri yfir þessu
ríki, svo langt sem valdsvið þess nær, og er þó nýyrðið
>fullvalda« fremur óheppilegt lýsingarorð um þjóð, sem
er svo máttlaus út á við sem allir hafa vitað og engum
kemur á óvart, en hefur nú einnig reynzt svo vanmegna,
viljalaus og þorlaus inn á við, að hér er ekki lagt upp
að átelja, heldur að eins að baktala herfilegustu og
skaðlegustu ósvinnur, sem gerast fyrir allra augum.
Með þessu spori, stofnun hins fullvalda ríkis, var nú
að vísu farið lengra en hóflegt var og hollt að yfirsýn
hinna beztu manna. Og hinir beztu menn í þessu efni
eru íslenzkir menn, sem hafa fundið hjá sér köllun til
að gerast leiðbeinendur og ráðgjafar landsmanna í slíku
máli og hvorki valdakepni, eigingirni né flokksfylgi hefur
afvegaleitt til að tala þvert um hug sinn meðan þeir
voru að gefa ráðin. Svo sem oft hefur verið tekið fram,
voru það einhuga tillögur þessara manna fram til árs-
ins 1907, að ekki skyldi farið lengra í réttarkröfunum
en það, að landsmönnum væri tryggt einræði yfir innan-
landsmálum sínum. Þegar nú ekki einungis það var
fengið, heldur og ríkisheitið í ofanálag, þá var kominn
tími til að nema staðar og varast að gera neitt það, er
tefldi í tvísýnu því sem fengið var. En með því að
áskilja sér rétt til að segja upp samningi, sem veifti
svo mikið, og það að skömmum tíma liðnum, er bæði
sköpuð hætta á, að það verði gert, og fyrirgert vissunni
um það við hvern muni verða að skifta um það er
samningum lýkur. Því verði samningnum sagt upp og
sambandinu við Dani slitið, þá verður óhjákvæmileg af-
leiðing af því sú að bundizt verður, fyr heldur en síðar,