Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 17

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 17
IÐUNN ísland fullvalda ríl<i“. 107 ors Lárussonar um Nýja Sáttmála, prentaður í Vöku I. 1. Hér á í hlut maður, sem bæði sökum þekkingar sinnar og þess, að hann fer vitanlega ekki með annað en það sem hann heldur vera satt og rétt, á það skilið að ekki sé gengið þegjandi fram hjá dómi hans. En um leið og ég tek þetta fram, vænti ég þess að mér verði virt til vorkunnar þó að ég hafi ekki getað fengið af mér að vera að eltast við dóma og ummæli manna, sem sjáan- lega geta ekki verið og sennilega mega ekki vera óljúg- andi, ef þeir eiga ekki að verða að nátttröllum í fram- sókn »þessarar þjóðar« til meiri og meiri fullkomnunar. Ó. L. veitir mér með allmörgum fögrum orðum við- urkenningu fyrir það að ég réðst í að tala bert um ým- islegt, sem, að hans sögn, var að vísu flest almenningi áður kunnugt og almenningur hafði hneykslazt á og dæmt harðlega. Það er að segja, dæmt í hugskoti sínu og í sinn hóp, en í óyggjandi fjarlægð frá þeim sem hneykslunum hafa valdið og ámælunum sætt. Prófessorn- um þykir mikils um vert að menn hneykslist og dæmi hart og sýni þannig að samvizka þeirra sé vakandi. En það er engin hætta á því, að mennirnir breytist nokk- urntíma svo, hvorki til góðs né ills, að samvizkur þeirra verði ekki jafnan sárt bitnar af ávirðingum annara. En því meira sem er um slíkt samvizkubit í landi og því minna sem gert er til að láta það bera ávöxt, þótt ekki sé í öðru en opinberlega yfirlýstri vanþóknun á ávirð- ingunum, því ískyggilegra er ástandið. Þá fyrst má segja að eitthvað fari að rofa til, þegar farið er að kveða upp úr með vanþóknunina. Prófessorinn er að vona að rit mitt muni eiga sinn þátt í breytingu til batnaðar í því efni. Ég finn mér skylt að viðurkenna að hann hefur ekki látið standa á tilstyrk sínum til þess að það megi verða. Það ætti að þykja ekki lítilsvert að maður í hans

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.