Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Blaðsíða 27
IÐUNN
Island fullvalda ríki“.
117
allir vegir færir. Jafnvel menn sem að eðlisfari voru
framtaksdaufir og höfðu landlæga ótrú á öllum breyt-
ingum, viðurkenndu þennan mann sem sjálfkjörinn for-
ingja landsmanna í velferðarmálum þeirra.
Ég fullyrði að allt þetta hafi verið betri undirbúningur
fyrir ungling til þess að geta síðar skapað sér einhverja
fótfestu og öðlazt skilning bæði á því sem þá var fram
að fara og því sem síðan hefur gerzt, heldur en ókjör
þau af pólitísku ólyfjani af ýmsri tegund, sem unglingar
alast nú upp við og enginn virðist ætla að hjálpa þeim
til að fá óbeit á.
Það gegnir furðu að nokkur nútíðarmaður, sem er
kunnugt um Þingvallafundinn 1873, skuli leggja upp að
bera þeirrar tíðar mönnum á brýn ótrú á landi og þjóð.
26. júní 1873 komu saman á Þingvöllum 35 kjörnir
fulltrúar af öllu landinu til þess að ræða nokkur lands-
mál, einkum stjórnarmálið, enda tók það svo að segja
allan tímann fyrir fundinum. I fundarbyrjun var sett 9
manna nefnd í málið, og eftir sólarhring skilaði hún áliti
sínu. Hún hafði samið frumvarp til stjórnarskrár í 10
greinum, og hljóðaði 1. gr. svo: »ísland er frjálst þjóð-
félag út af fyrir sig, og stendur í því einu sambandi
við Dani, að það lýtur hinum sama konungi og þeir*.
Eftir umræður, sem stóðu yfir það sem eftir var dags-
ins og næsta dag allan, var 1. gr. frumvarpsins sam-
þykkt með 24 atkvæðum gegn 7 og nokkur önnur nið-
urlagsatriði í einu hljóði. Atkvæðisrétt á fundinum höfðu
ekki aðrir en kjörnir fulltrúar, en öðrum var Ieyft að
taka þátt í umræðum. Meðal þeirra, sem þar voru komnir
og notuðu sér leyfið, var ]ón Sigurðsson alþingisforseti.
Hann lagðist mjög á móti tillögum nefndarinnar, og í
sama streng tóku af hinum kjörnu fulltrúum ]ón Guð-
mundsson málaflutningsmaður, fulltrúarnir úr Gullbringu-