Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Síða 30

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Síða 30
120 Island fullvalda ríki IÐUNN eður annara sambandsþjóða með. Allur heimur væri nú svo siðaður, að enginn mundi ráðast á vopnlausa þjóð; það fengist aldrei full viðurkenning á því, að vér erum sérstakt þjóðfélag, ef vér hefðum samband við aðra þjóð um annað en konung* osfrv. Með öðrum orðum: til- lögur fundarins, eru byggðar á þeirri trú, að allar þjóðir, aðrar en Danir og íslendingar, sé orðnar annaðhvort að englum eða að sauðum. En, þó að undarlegt megi virðast, var þessu haldið fram í einlægni. Er hægt að fullyrða hið sama um þá menn sem 34 árum síðar fóru, þvert ofan í fárra mánaða gamlar, hátíðlegar yfirlýsingar sínar, að halda fram kröfunni um sérstakt ríki? Það hefur orðið hlutskifti mitt að leggja upp í hend- urnar á menntalýð og öðrum borgurum höfuðstaðarins verkefni, sem gaf þeim öllum tækifæri til að sýna að þeir ættu til það lágmark umhyggju fyrir því, að þeim sé ekki boðin hneykslanleg löggæzla og réttarfar, sem heimta verður af borgurum í siðuðu og frjálsu þjóðfélagi. Eg hef gert það sennilegt að minnsta kosti, að hér hafi fyrir nokkrum árum verið framið ódáðaverk, af lúaleg- ustu hvötum og að nokkrum líkindum á hroðalegan hátt. Eg hef sannað, að rannsókn sú sem gerð var út af því hafi verið óverjandi léleg. Meira en þetta hefði ekki átt að þurfa til þess að borgarar bæjarins hefðu af eigin hvötum risið upp og látið í Ijós að til slíks vildu þeir ekki vita í sínum bæ. En ég lét ekki við það lenda að láta mönnum í té óhrekjandi skýrslu um málavöxtu. Eg mæltist til þess tvisvar af Reykvíkingum, að þeir legðu með einu orði fram hjálp sína til þess að málið yrði rannsakað betur en gert hafði verið. Eg gerði það ekki einungis vegna vandafólks manns þess, sem lét lífið, þegar tilraunir þess til að fá dómsmálastjórn landsins til að gera skyldu sína hcfðu reynzt árangurslausar, heldur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.