Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Side 31
IÐUNN
ísland fullvalda ríki".
121
einnig vegna Reykvíkinga sjálfra og annara landsmanna,
og ætti að vera óþarfi að útlista það frekar. Undirtektirnar
voru steinhljóð. Ég hef ekki orðið þess var að einn ein-
asti maður hafi hætt sér út í að leggja svo réttmætri og
sjálfsagðri áskorun eitt liðsyrði. En það er varla tiltöku-
mál þó að bæjarbúar sinni ekki áskorun frá mér, þegar
þeir daufheyrast við neyðarópi síns eigin bæjarfógeta.
Því að neyðaróp er það sem hann lætur til sín heyra í
Morgunblaðinu 10. apríl þ. á. í viðtali við ritstjórn blaðs-
ins lýsir hann ástandi því sem hegningarhús landsins er
í. Því miður er hér ekki rúm til að taka skýrslu hans
upp orðrétta; en hitt og annað skal tilfært úr henni.
Blaðið hefur eftir honum þau orð, að j>Steinninn« (þ. e.
hegningarhúsið) sé þjóðarsmán. Fangaverði sé bókstaf-
lega ómögulegt að hindra að fangarnir hafi samband við
menn utan hússins. Það hefur verið látið viðgangast að
byggt hefur verið svo nærri húsinu, að hver sem vill
hafa tal af föngunum á næturþeli, þarf ekki annað en
að fara upp á þak á einhverjum af skúrum þeim, sem
»fyrir nokkrum árum« hafa verið byggðir upp að hegn-
ingarhússgarðinum. Hægðarleikur er það sagður vera að
koma »snærispósti« úr klefunum út á götuna eða utan
að inn í húsið. Það hafi komið fyrir og muni ekki vera
sérlega óalgengt, að föngunum sé sent hitt og annað
þessa leið. Talið er bókstaflega ómögulegt að koma í
veg fyrir slíkt nema með því að hafa verði á vakki nótt
og dag, utan húss og innan. »Má geta nærri hvaða
áhrif þetta geti haft t. d. í rannsókn mála, þegar menn
eru í gæzluvarðhaldi og mættu tneð engu móti geta
haft neitt samband við menn, sem við málin eru riðnir«.
Þegar húsið var byggt (1872), voru í Reykjavík rúm-
lega 2000 íbúar, en nú eru þeir rúmar 23 þúsundir. En
þegar stundir liðu fram og húsið var fyrir löngu orðið