Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 32
122
ísland fullvalda ríki
JÐUNN
of lítið, var fangaklefum í því fækkað, en ekki fjölgað.
Það er fyrir löngu orðið svo ónógt til síns ætlunarverks,
að ekki veitir af því fyrir varðhaldshús eingöngu. »Auk
þess .. . er það óhæft sem fangelsi á marga lund fyrir
þá, sem eiga að vera þar lengri tíma. Þar er t. d. engin
sjúkradeild*. >Menn, sem eigi eru fílhraustir, komast al-
gerlega hjá því að taka út hegningu*. »Alveg óverjandi
að láta þangað menn sem sýnilega eru heilsubilaðir«.
^Byggja þarf hegningarhús, sem samsvarar kröfum tím-
ans . .. fyrst og fremst að hægt sé að hafa þar lög-
boðna stjórn«. Bæjarfógeti talar um nauðsynina á að
stemma stigu fyrir hinni vaxandi glæpaöld í höfuðstaðn-
um. »Má geta nærri að það er alvörumál sem alþjóð
varðar, þegar við eigum við það að búa, að fjöldi manna
getur ekki tekið út refsingu árum saman vegna þrengsla
í »Steininum«, menn sem heilsuveilir eru sleppa við
refsingu æfilangt, hve margoft sem þeir eru dæmdir, og
eigi verður tjónkað við þá fáu, sem hnepptir eru í varð-
hald, vegna þess að þeir sífellt hafa samband við götulíf
höfuðstaðarins, og séu þeir inni til lengri tíma, má bú-
ast við að þeir komi út líkamlega veiklaðir og ófærari
en þeir voru áður til að stunda heiðarlega atvinnu*.
Að viðtalslokum kvaðst bæjarfógeti vonast eftir að fá
síðar tækifæri til að taka fleira fram um málið.
Með þessari hroðalegu, en vitanlega dagsönnu lýs-
ingu á hinu einasta hegningarhúsi landsins er þá fengin
meðal annars nokkur skýring þess hvernig stendur á
faraldrinum í opinberu málunum í Reykjavík. Og mönn-
um má fara að skiljast hin vaxandi viðkoma grunaðra
manna í þessu landi, grunaðra um morð og rán, um
brennur, um sviksamleg gjaldþrot og um flesta aðra
glæpi, sem heiti hafa.
Lýsing bæjarfógeta á ástandinu hefur líklega komið