Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 39
IÐUNN
Hvalveiðar í Suðurhöfum.
129
elfa, sem skiftist í margar kvíslar, og rennur ein í hvern
bræðsluofn. Hver af þeim tekur um 15,000 lítra og eru
þeir 8—10 á hverju skipi, og í þeim verður spikið að
olíu. Auk þess eru sérstakir bræðsluofnar, þar sem olía
er unnin úr tungu, sporði og nokkrum feitustu beinum
hvalsins. Þetta gengur með syngjandi hraða, svo að sami
hvalurinn, sem byltir sér frí og frjáls í öldunum að
morgni getur verið orðinn að tærri olíu að kveldi. Það
er líka betra að hafa hraðann á, því að veiðitíminn er
ekki nema 4 mánuðir. Útgerðin kostar tugi miljóna og
hvert skip verður því að fá fullfermi. Og þegar veðrið
er gott og veiðin fjörug, svo að stórar breiður af hval-
skrokkum eru festar við skipin, þá getur að líta það
mesta áframhald við vinnu, sem þekkist. Vélar og menn
keppast sem mest má verða, skark og högg, blástrar og
stunur vélanna blandast saman við hróp og köll, blót og
ragn og annað slíkt, sem menn hafa til þess að halda
sér uppi þegar þeir eru þreyttir. En áfram vilja allir
halda sem bezt, því að allir, frá foringja fararinnar til
vikadrengs, hafa ágóðahluta af því sem aflast.
Omögulegt er að segja, að beinlínis sé snyrtilegt um-
hverfis hvalveiðarana, eins og varla er við að búast.
Þegar dauðir hvalir liggja lengi í sjó, myndast innan í
þeim vindur, sem blæs þá út, svo að oft er því líkast
sem floti af Zeppelínsloftförum hafi sezt á sjóinn, og
þegar svo gat kemur á hvalinn þykir flestum sá þefur
einhver hinn fúlasti og stækasti, sem borið hefir fyrir
vit þeirra. Auk þess er loftið fult af stækjulykt þeirri,
sem jafnan er nálægt bræðslustöðvum og hvalfjörum,
ekki sízt þegar blæjalogn er, og gígurinn verður eins og
lokað hús. En á sjálfu skipinu er alt smurt olíubrækju,
sem smýgur gegnum alt og sósar alt, og þegar kola-
reykur og annar óþverri sezt í þessa brækju, þarf varla