Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 56

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 56
146 Húsiö hennar Evlalíu. IÐUNN inu með skjálfandi höndum. »Sjáið þér hérna«, mælti hann, og tók upp úr veskishólfinu hinu megin lítið, hvítt spjald. Það var venjuleg frönsk dánarminning. Á spjaldið var ristur kross og dúfa, og þar fyrir neðan voru þessi orð letruð: »Eulalie-]osephine-Marie Leroux. Fædd 16. maí 1874. Dó 12. ágúst 1892. Biðjið fyrir henni*. »Góður guð veit, hvað hann gerir. Ég bygði þetta hús handa dóttur minni, og þegar því var lokið, tók guð hana frá okkur. Við vorum örvita af sorg, ég og konan mín. En ekki gat það bjargað henni. Ef til vill erum við enn sturluð af sorg«, sagði veslings gamli maðurinn ofur sakleysislega. »Við getum ekki um annað hugsað. Okkur langar aldrei til að tala um neitt annað. Við gátum ekki búið í húsinu — húsinu hennar, án hennar. Við ætluðum aldrei að leigja það. Ég bygði húsið handa dóttur minni, ég bjó það út að húsgögnum og öðru fyrir hana, og þegar svo alt var tilbúið, dó hún. Var það ekki hart, herra minn? Hvernig átti ég að fara að leigja óviðkomandi mönnum húsið? En seinustu árin hefi ég orðið fyrir fjártjóni, og er neyddur til að leigja það til þess að greiða skuldir mínar. Ekki mundi ég hafa leigt húsið hverjum og einum. Þér eruð Eng- lendingur. ]á, en ef mér félluð þér ekki vel í geð, mundi ég ekki hafa leigt yður það, þótt í boði hefði verið miljón enskra punda. En mér þykir vel, að ég hefi leigt yður. Þér haldið minningu hennar í heiðri. Og þér ætlið að leyfa okkur að halda herberginu — herberginu hennar. Við eigum að fá að halda því eins og það er, með mununum hennar í því. ]á, þetta her- bergi, sem þér hugðuð að væri búið í — það var her- bergið hennar dóttur minnar*. Frú Leroux beið eftir okkur í blómgarðinum við húsið. Hún leit áhyggjufullum augum til manns síns, er okkur

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.