Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Síða 74
164
Þjóðmálastefnur.
IÐUNN
vegishöldar í samkvæmislífi landsmanna og hverskonar
mannfagnaði, og það enn fremur fyrir þá sök, að þeir
höfðu fjárhagslega yfirburði umfram aðra landsmenn. —
En um leið og atvinnubyltingin hélt innreið sína í landið,
urðu þau umskifti, að fésýslumennirnir tóku við forystu
í samkvæmislífinu. Þar sem áður réðu einkum andlegir
yfirburðir, ráða nú fjármunir. Og þar sem embættismönn-
unum mun mörgum nauðugt að afsala sér fyrri virð-
ingaraðstöðu, reyna þeir margir að blása anda í nasir
gullkálfinum. Þar að auki eru margir þeirra fjárhagslega
bundnir fésýslumönnum, annaðhvort vegna skulda, ellegar
að þeir hafa lagt sparifé sitt í fyrirtæki þeirra.
Flokkur sameignarmanna, Jafnaðarmannaflokkurinn, er
gersamlega andstæður samkepnismönnum og reisir stjórn-
málabaráttu sína og kröfur á gagnstæðum rökum. Harð-
vítugir andspyrnumenn auðvaldsins segja: Svonefnt ein-
staklingsframtak hefir, gegnum ofbeldisskipulag sam-
kepninnar, gert mikinn þorra af vinnandi lýð heimsins
að atvinnuþrælum. Undirstéttir þjóðlandanna hafa sveizt
blóðinu við að bera uppi óhófslíf ístrumaga, vínsvelgja
og skartkvenna, en borið sjálfar úr býtum skorinn skamt
öreigans. Fyrir því hafa þessar stéttir löngum verið of-
urseldar þjáningum og menningarleysi örbirgðarinnar.
Þeir segja enn fremur: Kenning auðvaldssinna um bless-
un framtaks og yfirburða einstaklingsins er blekking.
Ranglæti í allri skipun mannanna um atvinnu og auð-
æfaskifti hefir haldið miklum þorra manna í sorpi niðri.
Aðstöðumismunur hefir oftlega valdið því, að miðlungs-
menn um vitsmuni og hæfileika hafa borist í efstu þrep,
meðan bjartra og bráðgerfustu hæfileika gætti ekki
undir fargi auðkúgunarinnar. Þannig hefir mikill hluti
af andlegri og siðgæðislegri orku mannanna farist og