Kirkjuritið - 01.02.1935, Side 16

Kirkjuritið - 01.02.1935, Side 16
Kirkjuritið. SÁLMABÓKARMÁLIÐ. (Höf. þessarar greinar flutti um sama efni er- indi á fundi sóknarnefnda og presta í Rvík í okt. s. 1.). Sálmabækur þær, sem notaðar hafa verið á íslandi til kirkju- og heimasöngs, þekkja flestir. Eða, eins og viss- ara mun að orða það, sálmabókina, sem nú er notuð til kirkjusöngs, kannast allur almenningur við, en að sjálf- sögðu eru menn misjafnlega handgengnir henni og inni- haldi hennar. Eins og kunnugt er, hefir það ekki verið tízka að ritdæma sálmabækur eins og önnur verk, i þessu falli „skáldverk“, og eru frá þessu aðeins undan- tekningar, sem segja má að komið hafi að þessu fyrir einu sinni eða tvisvar á öld eða svo. Menn hafa talið, að hér væri atriði, sem aðeins varðaði kirkjuna (kirkju- félagið) og söfnuðina, en ekki hið opinbera líf á annan hátt; ef kirkjan og hennar fólk vildi búa að þeim bók- um, eins og þær væru, þá væri það þeirra mál, en ekki annara. — Allra sízt hefir á því þótt mark takandi, þótt andstæðingar kirkju og kristindóms hreyttu úr sér ónot- um eða ókvæðisorðum út af trúarlærdómum eða at- höfnum, eða ræðum og ritum kristinna manna í kirkju- lífi þeirra. En nú — nú er, eða varð fyrir skömmu og alt i einu, alt í háa lofti vegna heldiu- auvirðilegra árása í níðgreinum um útgáfu nokkurra sálma (að mínum dómi að vísu ekki ýkja-merkilegra), sem í algerðu granda- leysi hafði verið unnið að á síðkastið og birtist á þessu herrans ári 1934, þótt teljast muni til ársins 1933. Hverju sætir þetla?

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.