Kirkjuritið - 01.02.1935, Blaðsíða 23

Kirkjuritið - 01.02.1935, Blaðsíða 23
KirkjuritiS. Sálmabókarmálið. 79 Ur framför eða ótvíræður ágóði framar þeim, sem þeg- ar eru i notkun. Ég þarf nú ekki — enda yrði það hér aÉ of langt mál — að taka dæmi þessu til staðfestingar, en skal leyfa mér að fullyrða það (og gæti auðvitað fundið þeim orðum mínum stað, ef á þyrfti að halda). ' Flettum upp, alveg af handahófi, einum af sálmum Þeini, sem þarna eru prentaðir eftir Matth. Joehumsson (frumort), jólasálmi nr. 673; fyrsta versið er: „Nú hljómar dýrð frá himni’ og jörð, með hósíanna’ og þakk- argjörð; því hindum heilagt bræðralag og hjóðum Jesú góðan dag“. Og á líkan liátt heldur sálmurinn áfram (9 vers). Þar er ekkert frumlegt, og eigi meira en sæmilega kveðið. Þó lirósa eðlilega Matthíasi allir. — Þá má finna últakanlega hugnæmt ljóð eftir ókunnan höf. (Árna Sigurðsson, Húsavík, nr. 680), fyrsta versið: „Nú blund- ar jörð í hleikum vetrarklæðum, nú brosir stjarna skær ifá sólarhæðum. Og friðarhoð er flutt til allra þjóða með feginsklið af strengjum söngs og ljóða“. Eftir hisk- UP J. H., sem mjög liefir verið hafður að skotspæni i arásunum á þessa útgáfu, skal hér ekki vitnað í neitt; aðeins má geta þess, að engan gat hann rneitt til skemda uieð frumkveðnum versum, það sem eftir hann er þarna, er nærri alt þýtt, og mætti þá finna að við frum- höfundana engu siður. (Og i þýddum sálmi eru liend- nigarnar sem sumum liefir orðið humhult af: „Starfa, svo verði’ ei vísað vinstri til handar þér, hamingjan öll og heillin hægra megin er“). Annars er meðal þessara ljóða í bókinni nokkrar góð- ar þýðingar, eins og t. d. nr. 859 („Kirkjuklukka, ekki’ í heimsins höllum“ — Grundtvig) gerð af Freyst. Gunn- arssyni. Það þarf og vart að taka fram, að þau ljóðin, sem í kverið eru tekin eftir Þorst. Gíslason, eru vel ort s. frv. Og aðra mætti alveg eins nefna, til meira eða minna hróss. En eftir lieildaryfirlit finst í safni þessu varla nokkurt vers (frumkveðið), sem andleg lífsnauð- syn sé að koma inn í sálmabók kirkjunnar að svo stöddu.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.