Kirkjuritið - 01.02.1935, Page 28

Kirkjuritið - 01.02.1935, Page 28
84 Gísli Sveinsson: Kirkjuritið. frelsarann“, sem í efni málsins þótti óviðkunnanlegra, en getur verið álitamál. (Um aðra breyt. mun þar ekki að ræða). — Um þennan kærandann er það ekki aðeins spurning, livort hann hafi haft ástæðu til þess að fylgja hinum, heldur einnig, hvort liann hefir haft til þess fult umboð, því að fleiri eru þar jafnbornir erfingjar. Þá er þeirri upptalningu lokið. Það er að fullu greinilegt, sem nefndin hefir gefið til kynna, að liún hafi „gert smábreytingar hjá sranum höf- undu'num til þess að laga málfæri og til þess að gera versin sönghæf", og tel ég óhikað hvorugt vítavert í þessu sambandi, heldur eftir atvikum sjálfsagt, sam- kvæmt því sjónarmiði, sem liún varð að binda starf sitt við. Sem dæmi má nefna breyt. í sálmi (nr. 812, þýð.) eftir Stgr. Tborsteinson (sem auðvitað enginn kærði): 2. er. byrjar: „Breið þú yfir berg og dali“ o. s. frv. í stað „Ó, breið yfir berg og dali“ (ósöngliæft); og seinni hluti 3. er.: „Niður anda lát þinn líða“ fyrir „Lát þinn anda niður líða“ (rímgalli) — breytingar, sem hverjum höf- undi myndi þökk á, að gerðar væru.--------- Ég hefi þá eytt nokkrum tima í það að tilgreina ná- kvæmlega, eftir þeim heimildum, sem ég hefi getað haft aðgang að, í liverju liin alræmdu kæruatriði á hendur þessari síðustu „sálmabókarnefnd“ vóru innifalin (að því er snerti „heimildarleysi“ og ,,breytingar“), at- riði, er svo urðu afdrifarík sem kunnugt er og áður er á minst. Má segja með sanni, að þar hafi lílil þúfa velt nokkuð stóru hlassi. Hér skal vitaskuld ekki út í það farið að athuga, hvort málsefni vóru í raun réttri það rík eftir öllum ástæðum, að réttlæzt hefði að gera þetta umrædda sálmakver upptækt o. s. frv. Málið út- kljáðist milli aðilja á þeim grundvelli og án dóms, og nær það þvi ekki lengra. En ég hefi talið rétt livort- tveggja, úr því að ég fór að ræða um þau efni, að al- menningi gætu orðið ku’nn þessi mál, svo að eigi þurfi framar um að villast, og eins liitt, að þessir sómamenn,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.