Kirkjuritið - 01.02.1935, Blaðsíða 40

Kirkjuritið - 01.02.1935, Blaðsíða 40
96 Erlendar fréttir. Kirkjuritið. Síöastur tekur til máls Lunde, biskup í Osló. Hann minnist tyrst d það, aö tangt sé síðan Norðmenn hafi fundið gleðina yfir þvi, að komast í samfélag við Guð, og þá hafi engin Ox- fordhreyfing verið. En því miður hafi það orðið tízka í Noregi, að mentamaðurinn hafi þózt upp úr því vaxinn að trúa á Guð. Og hvað hafi svo ekki gjörst í dag. Mentamenn af öllum stéttum háfi lýst yfir trú sinni á Guð. Ef þessum merkilegu Oxford- mönnum skyldi auðnast að ná í raun og veru með boðskap sinn til mentamanna Oslóar — þá gæti hann glaður og róiegur hallað höfði sínu að moldu. Það fari nú að líða að því. Þá sæi hann í anda, að Noregur væri framtíðarland og myndi vísa stór- þjóðunum veginn. Orð biskupsins aldurhnigna hafa mjög mikil áhrif á söfnuð- inn, og bundruð radda titra, er allir biðja að lokum upphátt með honum: „Faðir vor“. Brot úr gömlu Nýja-testamentis handriti. 23. jan. þ. á. flutti Ríkisútvarpið þá fregn eftir Lundúnaút- varpinu, að fundist hefðu á Þjóðbókasafninu í London (British Museum) handritabrot, er talin séu mjög merkileg. Hafi þau verið í bögli með gömlum papyrus handritum, sem safnið keypti síðasthðið sumar. Séu það tvö papyrusblöð, um fjórum sinnum þrír þumlungar að stærð, og nokkur enn þá minni brot, morkin af elli, með grísku letri. Textinn á einu blaðinu ei' mjög áþekkur kafla úr Jóhannesar guðspjalli, og er sennilegt talið, að hér sé um afarfornt guðspjallahandrit að ræða, ef til vill frá fyrra hluta annarar aldar. Ef svo skyldi reynast við nánari rannsókn, væri hér um afarmerkilegan fund að ræða. — „Kirkjuritið“ mun síðar skýra frá handritsfundi þessum, þegar nánari atvik verða kunn. Trúarlækningar. Ríkisútvarpið flutti einnig þá fregn eftir Lundúnaútvarpinu 23. janúar, að enska þjóðkirkjan hefði þann dag opnað fyrslu stöð sína fyrir trúarlækningar í St. Stephens kirkju í Brighton á Suður-Englandi. í boðskap, sem biskupinn af Chichester gaf út í því sambandi, var lögð áherzla á nauðsyn þess, að læknar og prestar vinni saman. Allan daginn hefðu komið i kirkjuna fjöldi fólks, til þess að leita sér lækninga.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.